Vinanet Rauða krossins
Vinanet er nýtt samstarfsverkefni Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og Ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins sem hóf starfsemi sína 1. febrúar 2009. Vinanet er hugsað sem spjall fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára sem hefur einangrað sig frá samfélaginu. Ætlunin er að ná til þessa hóps með aðstoð Internetsins en það er sá vettvangur þar sem auðvelt er að ná til sem flestra. Á Vinaneti getur fólk rætt saman á uppbyggilegan hátt um hin ýmsu málefni. Einu sinni í mánuði verða hittingar meðal þeirra sem eru á spjallinu ásamt sjálfboðaliðum og verður ýmislegt skemmtilegt gert eins og fara saman í bíó, í keilu, á skauta, á kaffihús og svo framvegis.
Nánar má lesa um verkefnið á www.vinanet.is

