Fréttir frá 112

Leiðbeiningar vegna inflúensu

Undirbúningur vegna svínaflensu

29.4.2009

Sjá stóra mynd

Í gærkvöldi lýsti alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) yfir því að hættustig vegna hugsanlegs heimsfaraldurs inflúensu hafi verið uppfært frá 3. stigi til þess 4. sem samsvarar hættustig almannavarnakerfisins hér á landi. Hér á landi hefur vinna hafist samkvæmt hættustigi almannavarna og markmið eru að halda nýjum inflúensustofni innan afmarkaðs svæðis,  seinka útbreiðslu og vinna þannig tíma til að bregðast við.

Seint í gærkvöldi  var fjöldi staðfestra tilfella þessi:

 

  • 3 tilfelli af svínainflúensu á Spáni og Bretlandi
  • 6 tilfelli í Kanada
  • 40 tilfelli í Bandaríkjunum
  • 33 tilfelli í Mexíkó. 

Tölurnar benda til þess að útbreiðsla svínainflúensu um heiminn sé umtalsverð. Í Bandaríkjunum þar sem flest tilfelli hafa verið staðfest er um vægan sjúkdóm að ræða. Ekki hafa borist fregnir um að sjúkdómstilvik sem greinst hafa annars staðar en í Mexíkó séu alvarleg. Í ljósi þess hve útbreiðsla inflúensunnar virðist umfangsmikil mælir WHO ekki með ferðatakmörkunum.

 

Hérlendis beinast aðgerðir manna að því á þessu stigi að fylgjast með þeim sem koma til landsins einkum frá Bandaríkjunum og Mexíkó. Þetta þýðir að ef  minnstu einkenna um inflúensu verður vart hjá viðkomandi þá undirgangast þeir læknisrannsókn.  Eins er lögð áhersla á að upplýsa aðila innan heilbrigðisþjónustunnar og  að hægt verði að taka strax sýni og bjóða inflúensusjúklingum upp á meðferð.   

Í landinu eru til inflúensulyf (sem talin eru virk gegn svínainflúensunni) fyrir um þriðjung þjóðarinnar.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Sóttvarnastofnun ESB hafa greinst tilfelli á Spáni og á Bretlandi og var staðan þessi seint í gærkvöld. Rétt er að benda á að aðeins 33 tilvik voru staðfest í Mexíkó.

Nánari upplýsingar um inflúensuna má finna á www.almannavarnir.is og www.influensa.is

 



 

 

Text Size Controls