Slökkviliðsmenn selja eldvarnabúnað í Kringlunni
Slökkviliðsmenn hjá SHS hefja árlega sölu á eldvarnabúnaði í Kringlunni mánudaginn 14. desember og standa þar vaktina allt til jóla. Þeir dreifa jafnframt upplýsingum um eldvarnir og veita fólki ráðgjöf. Salan er á vegum Brunavarðafélags Reykjavíkur og fer fram á opnunartíma Kringlunnar allt fram að lokun á Þorláksmessu. Fólki gefst kostur á að kaupa bæði reykskynjara og slökkvitæki og veita slökkviliðsmenn fúslega ráðgjöf um hvaðeina sem lýtur að eldvörnum heimilanna. Eldvarnir eru slökkviliðsmönnum afar hugleiknar um þessar mundir enda sýnir reynslan að eldsvoðar eru tíðir á aðventunni og um hátíðirnar, ekki síst vegna aukinnar notkunar rafmagns og kertaljósa. Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stóð að Eldvarnaátakinu um allt land fyrir skemmstu og nú fylgir Brunavarðafélagið því eftir með sölunni í Kringlunni. Ítarlegar upplýsingar um eldvarnir heimilanna er að finna undir forvarnir hér á vefnum. SHS hvetur þá sem leið eiga um Kringluna á næstunni til þess að notfæra sér ráðgjöf slökkviliðsmanna og kaupa nauðsynlegan öryggisbúnað fyrir heimilið.

