Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin til Haíti
Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin hefur verið kölluð út til hjálparstarfa á Haiti þar sem öflugur jarðskjálfti reið yfir í gærkvöldi. Ástandið í landinu er slæmt og óttast er að margir hafi látið lífið. Flogið verður til Bandaríkjanna og þaðan til Haiti eða Dóminíska lýðveldisins og er áætluð lending þar um klukkan 19:00 að íslenskum tíma.
Íslenska sveitin verður meðal þeirra fyrstu á staðinn en unnið hefur verið að því í alla nótt að undirbúa förina í góðri samvinnu við Utanríkisráðuneytið. M.a. kom utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, í Skógarhlíðina í nótt þar sem sveitin kom saman og fór í gegnum læknisskoðun. Fulltrúi frá utanríkisráðuneytinu mun einnig fylgja sveitinni í skaðalandið.

