Fréttir frá 112

112 Europe

112-dagurinn haldinn um alla Evrópu

9.2.2010

Þann 11. febrúar næstkomandi verður 112-dagurinn, dagur neyðarnúmersins, haldinn á Íslandi og í löndum Evrópusambandsins. 112-dagurinn er nú haldinn á Íslandi í sjötta sinn en annað sinn um alla Evrópu. Í öllum löndum ESB er unnt að leita aðstoðar lögreglu, sjúkraliðs, slökkviliða og björgunarfólks án endurgjalds í gegnum sama neyðarnúmer og á Íslandi, 112.

Kannanir sýna að níu af hverjum tíu Evrópubúum eru ánægðir með hið samræmda neyðarnúmer. Á hinn bóginn þekkja aðeins 25 prósent íbúa Evrópusambandsins númerið. Því er lögð áhersla á að kynna númerið og notkun þess um alla Evrópu á 112-daginn, 11. febrúar. Kannanir sýna hins vegar að næstum 99 prósent Íslendinga þekkja neyðarnúmerið. Til að auka kynningu á þessu mikilvæga númeri var sett á fót sérstök stofnun með aðsetur í Brussel, 112 Foundation. Hún tekur nú þátt í kynningu á neyðarnúmerinu víða um Evrópu.

Samstarfsaðilar 112-dagsins á Íslandi eru Neyðarlínan, ríkislögreglustjórinn, Brunamálastofnun, slökkvilið, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Barnaverndarstofa, landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Flugstoðir.

Að þessu sinni beina þeir sjónum sérstaklega að aðkomu hins almenna borgara að vettvangi slysa, veikinda og annarra áfalla. Viðbragðsaðilar koma sjaldnast fyrstir á vettvang slíkra atburða. Oftast hefur venjulegur borgari komið að, tilkynnt um atburðinn og veitt fyrstu aðstoð. Þessi fyrstu viðbrögð geta skipt miklu um afdrif fólks og hvernig til tekst með björgun.

 

 

Text Size Controls