Fréttir frá 112
112 dagurinn 2010

Skyndihjálp í brennidepli á 112-daginn, 11. febrúar

9.2.2010

112-dagurinn verður haldinn víða um land fimmtudaginn 11. febrúar eins og undanfarin ár. Þema dagsins er aðkoma venjulegs fólks að vettvangi slysa, veikinda og áfalla. Viðbragðsaðilar koma sjaldnast fyrstir á vettvang slíkra atburða. Oftast kemur venjulegur borgari fyrst að, tilkynnir um atburðinn og veitir fyrstu aðstoð. Þessi fyrstu viðbrögð geta skipt miklu um afdrif fólks og hvernig til tekst með björgun. Þess vegna er mikilvægt að sem flestir kunni skyndihjálp og treysti sér til að veita hana þegar á reynir.

112-dagurinn er haldinn í fjölmörgum Evrópulöndum þennan sama dag. Samstarfs-aðilar 112-dagsins á Íslandi eru 112, ríkislögreglustjórinn, Brunamálastofnun, slökkviliðin, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Barnaverndarstofa, landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkra-flutningamanna og Flugstoðir.

Dagskrá 112-dagsins er fjölbreytt að venju. 112 blaðið kemur út og kynntar verða niðurstöður Gallup-könnunar um skyndihjálparþekkingu landsmanna. Þar kemur meðal annars fram að þeir sem hafa farið á námskeið í skyndihjálp á síðustu þremur árum segjast miklu fremur en aðrir treysta sér til að hjálpa við erfiðar aðstæður. Fjöldi grunnskólabarna fær fræðslu um skyndihjálp og slysavarnir í tengslum við daginn, og viðbragðsaðilar kynna skyndihjálp, slysavarnir og fleira, meðal annars í Smáralind laugardaginn 13. febrúar. Loks má nefna að móttaka verður í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð 11. febrúar þar sem skyndihjálparmaður Rauða krossins verður útnefndur og verðlaun veitt í Eldvarnagetrauninni.

 

Á vef Neyðarlínunnar, 112.is, er að finna áhugavert efni fyrir börn og fullorðna sem tengist deginum. Þar er meðal annars hægt að taka próf í skyndihjálp, skoða myndasýningu og margt fleira.



Senda grein


Eldri fréttir


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica