Fréttir frá 112
2010konnun_hefurduhringt

Almenningur jákvæður í garð 112

7.6.2010

Árleg könnun Capacent Gallup, nú síðast frá því í mars 2010, sýnir að almenningur er jákvæðari í garð 112 en almennt tíðkast hjá opinberum stofnunum og félagasamtökum.


Jákvæðnin í garð 112 mælist 4,7 á kvarðanum 1-5. Það er Hversu jákvæður eða neikvæður ertu gagnvart 112hæsta gildi sem mælist hjá Capacent en meðaltalið er 3,6 og lægsta gildi er 2,1. Alls segjast 94% svarenda í könnun Capacent mjög eða frekar jákvæðir í garð 112. Aðeins 0,7% lýsa neikvæðni í garð 112.

Könnunin leiðir einnig í ljós að næstum því allir svarendur þekkja neyðarnúmerið fyrir lögreglu, slökkvilið, sjúkraflutninga og aðra viðbragðsaðila. Aðeins 0,3% sögðust ekki þekkja það og 0,7% nefndu annað en 112. Þetta er svipuð niðurstaða og í mælingum Capacent á undanförnum árum.2010konnun_thekkirdunumerid

Þátttakendur voru spurðir hvort þeir hefðu hringt í 112 á síðustu tólf mánuðum og játaði nær fjórðungur svarenda því eða 23,1%. Hæst var hlutfallið í hópi svarenda á aldrinum 16-24 ára, 33%. Í langflestum tilvikum þurfti fólk að tilkynna um slys, árekstur eða óhapp, 13,1% vantaði lögreglu og 8,6% þurftu á sjúkrabíl að halda. Mikill meirihluti, 81,2%, kvaðst mjög eða frekar ánægður með hvernig leyst var úr erindinu. Heldur fleiri voru óánægðir nú en í fyrri könnunum eða 8,1% miðað við 7,5% fyrir ári.

Senda grein


Eldri fréttir


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica