Sjúkralið landsins
Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, Slökkvið Akureyrar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Fjarðarbyggð annast sjúkraflutninga hver á sínu svæði, skv. samningum við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Utan ofangreindra er það mismunandi á landsvísu hvernig staðið er að sjúkraflutningum en í flestum tilfellum sjá heilsugæslur - sjúkrahús í héraði um sjúkraflutninga.
Sjúkraflutningar eru hluti af heilbrigðisþjónustunni með það að markmiði að bjarga mannslífum, veita sjúkum og slösuðum aðhlynningu og koma þeim undir læknishendur. Til þess hafa slökkviliðið - heilsugæslur – sjúkrahús, sjúkrabifreiðar sem Rauði Kross Íslands á og rekur.
Bifreiðarnar eru mjög fullkomnar og einstaklega vel útbúnar tækjum og búnaði. Í öll útköll fara sjúkraflutningamenn sem hafa réttindi til slíks.
Allir sjúkraflutningamenn hafa að lágmarki, grunnnámskeið sjúkraflutninga auk þess sem stöðug endurmenntun er til staðar og æfingar eru í góðri samvinnu við t.d. sjúkraflutningaskólann

