Neyðarþjónusta

Greiningin F-1, F-2 og F-3 er notað í öllum tilfellum við greiningu á neyðaratvikum, hvort sem er slys, eldur eða veikindi.
 
F stendur fyrir FORGANGUR og númeraröðin stendur fyrir mikilvægi.
 

Rauður, gulur og grænn er viðbót í boðun, aðallega vegna björgunarsveita.

Hér er stutt samantekt yfir almenna forgangsskiptingu í boðun viðbragðsaðila í gegnum 112.

 

F-1 Rauður

Forgangur 1 Rauður, er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin í efsta forgang og sem lífsógn. Sjúkrabíll og/eða annað björgunarlið er sent í forgangsakstri. T.d. þar sem allt tiltækt björgunarlið væri með aðkomu, stóreldur, fjöldaslys eða einstaklingsslys með alvarlegum áverkum.


 

F-2 Gulur

Forgangur 2 Gulur er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin í næst efsta forgang. Sjúkrabíll og /eða annað björgunarlið er sent í forgangsakstri en aðeins í atburði án lífsógnar.


 

F-3 Grænn

Forgangur 3 er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin til afgreiðslu strax en án forgangs. Aðeins viðeigandi hluta björgunarliðs er kallaður, staðbundin aðgerð sem krefst hvorki forgangs eða fjölda manns.



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica