Stærri atburðir

Stærri atburðir

Undir stærri atburði fellur allt það sem hin daglega neyðarþjónusta ræður illa eða ekki við. Atburðir sem krefjast utan aðkomandi aðstoðar frá öðrum byggðarlögum eða svæðum flokkast því undir stærri atburði.

Sami atburður á svæði höfuðborgar og í afskekktu byggðarlagi hefur því aðra sýn og flokkast því mismunandi.

Að Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð koma skilgreindir aðilar og eru í viðbragðsstöðu allan sólarhringinn, árið um kring. Hér starfa aðilar sem gegna lykilhlutverki í forvörnum og viðbúnaði vegna slysa og náttúruhamfara. Þeir eiga mikið samstarf vegna slíkra atburða með stjórnun og beinni þátttöku í boðun, samhæfingu og aðgerðum. Í húsinu er sérútbúin stjórnstöð sem er í senn stjórnstöð leitar og björgunar og samhæfingarstöð almannavarna á landsvísu. Á hættutímum starfar þar saman fólk frá stofnunum og almannasamtökum innan sem utan Björgunarmiðstöðvarinnar Skógarhlíðar.

Erindin við Björgunarmiðstöðina Skógarhlíð skipta árlega hundruðum þúsunda og snúast um allt frá minniháttar óhöppum upp í atvik sem skapa neyðarástand. Við þeim er brugðist hratt og örugglega eftir fyrirfram ákveðnu skipulagi. Allt starf í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð miðar að því að auka öryggi og velferð landsmanna með forvörnum og viðbrögðum við hvers kyns vá. Það byggist á hæfu og vel þjálfuðu starfsfólki sem hefur yfir að ráða fullkomnum tækjum til björgunarstarfa ásamt háþróuðum búnaði til fjarskipta og geymslu og flutnings gagna.

Vefur Almannavarna



 

 

Text Size Controls