Samhæfingarstöð almannavarna
Samhæfingarstöð almannavarna og Stjórnstöð leitar og björgunar er staðsett í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð. Viðfangsefni hennar eru fjórþætt; leit að týndu loftfari undir stjórn Flugmálastjórnar Íslands; leit og björgun á landi undir stjórn fjarskiptamiðstöðvar lögreglu; leit og björgun á sjó undir stjórn Landhelgisgæslunnar; og í almannavarnaástandi eins og við náttúruvá, slys, eða aðra atburði, sem ógna almannaheill, virkjar almannavarnadeild ríkislögreglustjórans Samhæfingarstöðina.
Við vinnu í Samhæfingarstöð og Stjórnstöð leitar og björgunar þarf sérhæft og vel þjálfað fólk úr röðum viðbragðsaðila og sjálfboðaliðasamtaka, sem eru frá almannvarnadeild, fjarskiptamiðstöð, umferðadeild og sérsveit ríkislögreglustjórans; Neyðarlínu, Vegagerðinni, Landlæknisembættinu, Flugmálastjórn, Landhelgisgæslu Íslands, vaktstöð siglinga, Rauða kross Íslands og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Samhæfingarstöð almannavarna hefur það hlutverk að samhæfa aðgerðir milli umdæma í almannavarnaástandi, fer með umsjón sjúkraflutninga úr umdæmi og úrvinnslu á skráningu þolenda. Auk þess er stór þáttur samhæfingarstöðvar að útvega mannafla, búnað og tæki til þess svæðis sem óskar aðstoðar.
Stjórn almannavarna í hverju lögsagnarumdæmi er í höndum lögreglustjóra sem hefur almannavarnanefnd sér til fulltingis. Lögreglustjóri fer einnig með stjórn leitar og björgunar hver í sínu umdæmi.
Ríkisútvarpið gegnir veigamiklu hlutverki í almannavörnum til að koma upplýsingum til almennings á skjótan hátt og hafa til þess útsendingarbúnað í Samhæfingarstöð almannavarna.
Neyðarsími almannavarna og lögreglu er 112

