Beint í leiðarkerfi vefsins.
Neyðarsímar eru sem dæmi staðsettir í eftirtöldum höfnum:
Við beiðni um aðstoð þurfa eftirfarandi upplýsingar að liggja fyrir:
Stutt inngrip í verklag neyðarvarða
Beiðni um aðstoð Neyðarlínunnar 112 getur komið í gegnum fasta síma sem staðsettir eru í höfnum landsbyggðarinnar. Þessir símar eru í flestum tilvikum einvalssímar þ.e. aðeins er hægt að hringja beint í 112 enginn annar valkostur er gefinn. Símar þessir eru sérmerktir, auðsjáanlegir öllum í þeim höfnum sem þeir eru uppsettir í.
Mánaðarlega eða oftar fer fram prófun á öllum tækjum og er hafnarvörður viðkomandi hafnar sem er ábyrgðaraðili vegna prófunar.
Lítið er um gabb eða önnur umferð um umrædd símtæki nema í neyð og því skal alltaf taka fullt mark á óljósum hringingum úr þessum símum.
Á skjá neyðarvarðar kemur yfirleitt upp staðsetning innan viðkomandi hafnar.
Viðbrögð skulu viðhöfð eins og EMD kortin segja til um og viðeigandi neyðarsveitir skulu boðaðar.