Beint í leiðarkerfi vefsins.
Inngrip í verklag neyðarvarða vegna virkjanasvæðis Kárahnjúka
Á virkjanasvæði Kárahnjúka sem er stórt og viðamikið eru margar vinnustöðvar. Það er því er nauðsynlegt fyrir neyðarverði að fá nákvæma staðsetningu innan svæðis, veður, færð (að vetri) og ýtarlegar upplýsingar um neyðartilvikið.
Neyðarverðir 112 fá til sín beiðnir um aðstoð, meta aðstæður, alvarleika atburðar og vegalengdir og bregðast við eftir innra
verklagi.
Neyðarverðir 112 boða einnig lögreglu og nauðsynlega viðbót í björgunarlið frá Egilsstöðum ef þörf er á, svo sem slökkvilið, lækni, Vinnueftirlit eða björgunarsveit, allt eftir eðli málsins.
Hlutverk neyðarvarða í öryggiskeðju vegna Kárahnjúkavirkjunar er vel skilgreint og unnið í samvinnu við Impregilo, Landsvirkjun, lækna, hjúkrunarfólk og lögreglu á Egilsstöðum.
(Smelltu á kortin til að stækka mynd)