Sjúkraflutningar - framkvæmd
Sjúkraflutningar
Inngrip í verklag vegna skráningar neyðarvarða á sjúkraflutningum landsins
Frá 1.janúar 2004, hefur 112 séð um alla skráningu sjúkraflutninga landsins skv. samningi við Landlæknisembættið og Rauða Kross Íslands (RKÍ).
Eftirlit er með nákvæmri skráningu í gagnagrunn því að ljóst er að lélegar upplýsingar og slakleg útfylling skjals sjúkraflutninga mun kosta mikla eftirvinnu eftirlitsaðila sjúkraflutninga.
Neyðarvörðum er skylt að vera nákvæmir í móttöku beiðna um sjúkraflutninga, t.d. að stofna varlega flutninga úr símtali og leggja sérstaka áherslu og vandaðan frágang vegna upplýsingaöflunar, þ.m.t. kennitölur, upphafs og endastaður flutnings, póstnúmer, sjúkrahús, slysstaður eða heimahús osfrv. ásamt greiðanda reiknings.
Frábrigði
Erlendir sjúklingar skulu eins og áður merktir með séreyðublaði (sem verður í rafrænu formi) og þarf að uppfylla m.a.
Erlenda sjúkra-slysatryggingu (ef er)
Nafn þess sem er fluttur og erlenda kennitalan
Heimili, borg og land
Vegabréfsnúmer
Hvernig skal staðið að skráningu og boðun í sjúkraflutninga.
Upplýsingar:
Allir sjúkraflutningamenn eru skráðir í gagnagrunn Neyðarlínunnar, hvort tveggja aðalmenn og staðgenglar. Uppfærsla, viðhald og skráning upplýsinga er í höndum 112.
Ábyrgðaraðilar
Ábyrgð á að upplýsingar vegna boðunar séu alltaf réttar er á herðum viðkomandi heilsugæslu / sjúkrahúss.
Skipulag og breytingar
Innbyrðis skipulag á sjúkraflutningum sjúkraflutningamanna, þ.e hver sinnir boðuninni í hvert skipti, er skipulagsatriði innan héraðs en skipulagið/ viðbragðsáætlunina þarf engu að síður að skrá í gagnagrunn Neyðarlínunnar þannig að neyðarvörður geti afgreitt aðstoðarbeiðnina.
Vegna grunnskráningar er nauðsynlegt að fyrir liggi:
Viðbragðsáætlun/skipulag sjúkraflutninga
Vaktaskipulag og annað sem því tengist
Nöfn sjúkraflutningamanna
Kennitölur sjúkraflutningamanna
Fastir símar, bæði vinnusími og heimasími, NMT sími (ef við á), GSM sími bæði einkasími og starfssími (ef við á).
Boðun fer fram í gegnum starfsíma (ef við á) annars einkasíma (GSM).
Á það má benda í þessu sambandi, að innhringingar í 112 eru gjaldfrjálsar fyrir innhringjanda.
Skammtímabreytingar
Öllum skammtímafrávikum frá fyrirfram skráðum upplýsingum skal beina beint til 112 þannig að vitneskja sé um þær við boðun.
Boðun
Öll boðun fer fram í gegnum SMS sem fyrsta valkost Notkun BOÐA boðunarkerfisins sem býður upp á hljóðskilaboð er einnig valkostur í stærri boðanir.
Vinnuferill neyðarvarða felst fyrst og fremst í því að meta forgang skv. þeim upplýsingum sem liggja fyrir við innhringingu í neyðarnúmerið og síðan að boða eftir þeim forgangi og umfangi sem er að ræða í hverju tilviki fyrir sig.
Sjúkraflug
Allt sjúkraflug skal skráð sem sérstakur sjúkraflutningur, þ.e. tölvuskjal fyllt út á nákvæmlega ( sama hátt og hvaða bíll (201/301/401 osfrv.) ) og fer eftir norður/vestur/suður/austur skiptingu.
Staðsetning sjúklings ákvarðar landshlutaskiptingu sjúkraflugs, t.d. sjúklingur Hornafirði er merktur sjúkraflug austur þó að upphafsstaður sjúkraflugs sé norðurland (Akureyri) og þetta á einnig við þyrlusjúkraflug (slasaðir og sjúkir).

