2007

Tölur vegna 2007

Hlutverk neyðarvarða er að svara erindum á sem skemmstum tíma, greina þau, boða viðeigandi hjálparlið, veita hringjanda og hjálparliði þjónustu á meðan á útkalli og aðgerðum stendur og loks að gera skýrslu um atvikið.

Þjónustumarkmið 112 eru eftirfarandi:

  • Að símtölum í 112 sé svarað á innan við 8 sekúndum í 90% tilfella
  • Að boðun sjúkrabíla í neyðartilfelli F1/F2 eigi sér stað á innan 90 sekúndum frá upphafi símtals í 90% tilfella.

Niðurstöður 2007

Neyðarverðir afgreiddu 188.535 neyðarsímtöl 2007. Í meira en helmingi neyðartilfella var leitað eftir aðstoð lögreglu eða 124.535 sinnum og ríflega 30 þúsund erindi (16%) bárust vegna sjúkraflutninga.

  • 97% símtala var svarað undir 8 sekúndum og meðalsvartími 3,6 sekúndur
  • Boðun í sjúkrabíla í neyðartilfelli F1 var undir 90 sekúndum í 80% tilfella.

    2007
 

 

Text Size Controls