2008
Tölur vegna 2008
Hlutverk neyðarvarða er að svara erindum á sem skemmstum tíma, greina þau, boða viðeigandi hjálparlið, veita hringjanda og hjálparliði þjónustu á meðan á útkalli og aðgerðum stendur og loks að gera skýrslu um atvikið.
Þjónustumarkmið 112 eru eftirfarandi:
-
Að símtölum í 112 sé svarað á innan við 8 sekúndum í 90% tilfella
-
Að boðun sjúkrabíla í neyðartilfelli F1/F2 eigi sér stað á innan 90 sekúndum frá upphafi símtals í 90% tilfella.
Niðurstöður 2008
Neyðarverðir afgreiddu 192.149 neyðarsímtöl 2008. Í meira en helmingi neyðartilfella var leitað eftir aðstoð lögreglu eða 127.761 sinnum og ríflega 30 þúsund erindi (16%) bárust vegna sjúkraflutninga.
-
95% símtala var svarað undir 8 sekúndum og meðalsvartími 3,8 sekúndur
-
Boðun í sjúkrabíla í neyðartilfelli F1 var undir 90 sekúndum í 80% tilfella.


