Tölur vegna 2009

Hlutverk neyðarvarða er að svara erindum á sem skemmstum tíma, greina þau, boða viðeigandi hjálparlið, veita hringjanda og hjálparliði þjónustu á meðan á útkalli og aðgerðum stendur og loks að gera skýrslu um atvikið.

Þjónustumarkmið 112 eru eftirfarandi:

  • Að símtölum í 112 sé svarað á innan við 8 sekúndum í 90% tilfella
  • Að boðun sjúkrabíla í neyðartilfelli F1/F2 eigi sér stað á innan 90 sekúndum frá upphafi símtals í 90% tilfella.

Niðurstöður 2009

Neyðarverðir afgreiddu 163.497 neyðarsímtöl 2009 sem er um 30.000 símtölum færra en árið 2008. Þetta er athyglisverð breyting og mögulega hafa breytingar í þjóðfélaginu sem átt hafa sér stað á þessu tímabili haft nokkur áhrif.

  • 96% símtala var svarað undir 8 sekúndum og meðalsvartími 4,5 sekúndur
  • Boðun í sjúkrabíla í neyðartilfelli F1/F2 var undir 90 sekúndum í 91% tilfella sem er umtalsverð breyting frá fyrra ári til hins betra og er afrakstur af bættum vinnuferlum, tækniumhverfi og góðu samstarfi við viðbragsaðila.

Flokkar_2009


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica