2011

Tölur vegna 2011

112 annast neyðarsímsvörun og boðun fyrir alla viðbragðsaðila vegna slysa, eldsvoða, afbrota, leitar, björgunar og náttúruhamfara hvort sem er á landi, sjó eða í lofti. Auk þess annast 112 símsvörun fyrir barnaverndarnefndir landsins.

Hlutverk neyðarvarða er að svara erindum á sem skemmstum tíma, greina þau, boða viðeigandi hjálparlið, veita hringjanda og hjálparliði þjónustu á meðan á útkalli og aðgerðum stendur og loks að gera skýrslu um atvikið.

Stöðugt er unnið að því í samvinnu viðbragsaðila að leita leiða til að tryggja góða þjónustu og stytta viðbragstíma eins og kostur er.

Þjónustumarkmið 112 eru eftirfarandi:

  • Að símtölum í 112 sé svarað á innan við 8 sekúndum í 90% tilfella
  • Að boðun sjúkrabíla í neyðartilfelli F1/F2 eigi sér stað á innan 90 sekúndum frá upphafi símtals í 90% tilfella.

Niðurstöður 2011

Neyðarverðir afgreiddu 153.295 neyðarsímtöl 2011 sem er um 8.000 símtölum færra en árið 2010.

Heildarfjöldi erinda var 225.580 2011 sem er tæplega 7.000 erindum færra en árið 2010.

  • 91% símtala var svarað undir 8 sekúndum og meðalsvartími 4,6 sekúndur
  • Boðun í sjúkrabíla í neyðartilfelli F1/F2 var undir 90 sekúndum í 92% tilfella.

 Flokkar 2010


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica