Starf neyðarvarða

Neyðarverðir

Starfið

Neyðarverðir annast símsvörun í neyðarnúmerinu 112. Þeir greina innkomandi erindi, boða viðbragðsaðila, þjónusta þá í útkalli og ljúka erindinu með skýrslugerð. Unnið er á vöktum í sveigjanlegu vaktakerfi. Störf neyðarvarða henta jafnt konum sem körlum.

Hæfniskröfur

Umsækjendur þurfa að hafa:

  • stúdentspróf eða sambærilega menntun, háskólamenntun er æskileg
  • góða almenna tölvukunnáttu og góðan innsláttarhraða
  • góða enskukunnáttu, talað og skrifað mál
  • góðan skilning á dönsku eða öðru Norðurlandamáli
  • almenna þekkingu á landinu
  • hreint sakavottorð

 

Persónulegir eiginleikar

Umsækjendur þurfa að:

  • eiga gott með að halda einbeitingu undir álagi
  • hafa frumkvæði, sjálfstæði og áræðni í starfi
  • hafa góða samstarfshæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum
  • hafa góða greiningarhæfni
  • hafa þjónustulund og sveigjanleika

Starfsumsóknir

Þegar störf neyðarvarða eru laus til umsóknar eru þau auglýst í fjölmiðlum og einnig á heimasíðu fyrirtækisins.

 

Þjálfun

Áhersla er lögð á að starfsmenn 112 fái þá menntun og þjálfun sem nauðsynleg er til að unnt sé að veita almenningi og samstarfsaðilum hágæða þjónustu. Nýliðar fara á 6-8 vikna námskeið í upphafi en síðan tekur við 4-6 vikna starfsþjálfun.

 

Vaktavinna

Tekið var upp sveigjanlegt vaktakerfi vorið 2003. Í því fólst að hætt var að nota tólf tíma vaktir og vinnutími starfsfólks skipulagður án þess að styðjast við fyrirfram skilgreindar vaktir.

Starfsmenn ákveða sjálfir hvaða klukkutíma þeir vilja vinna til að skila sínum vinnustundum. Með hjálp Time Care hugbúnaðar er séð til þess að fjöldi starfsmanna á hverjum tíma sé í samræmi við þörf. Breytingin hefur haft margvísleg jákvæð áhrif á starfsemi 112. Starfsmenn eru yfirleitt ánægðari í starfi og hagræðing hefur orðið í rekstrinum. Starfsmenn hafa kynnst betur innbyrðis. Einn meginkostur nýja fyrirkomulagsins er sá að mun betra svigrúm hefur gefist fyrir endurmenntun og þjálfun starfsfólks.

Hver starfsmaður fær nú tvo daga í mánuði yfir veturinn sem nýttir eru til þessara þátta. Einnig gefst starfsmönnum betra svigrúm til að leggja stund á nám jafnhliða starfinu. Þeim umsækjanda sem kemur til greina í starf skal kynna aðbúnað og starfsskyldur áður en gerður er ráðningarsamningur.

Gerður er skriflegur ráðningarsamningur við alla starfsmenn auk þess sem þeir undirrita trúnaðaryfirlýsingu áður en þeir hefja störf. Þetta á við alla starfsmenn, jafnt afleysingarmenn og menn í fullu starfi, neyðarverði, stjórnendur og aðra.

Í ráðningarsamningi er getið um starfstímabil, launakjör og verksvið.

Ráðningarsamningurinn er gerður sem sérstakur samningur milli starfsmanns og fyrirtækis. Þar eru dregin saman ýtarleg greining á launum og skyldum en að öðru leyti gildir kjarasamningur Neyðarlínunnar við Verslunarmannafélag Reykjavíkur (V.R.) sem tryggir starfsmönnum þau réttindi sem samið hefur verið í almennum samningi V.R. og Samtaka Atvinnulífsins.



 

 

Text Size Controls