Upplýsingamiðlun

Öflugt kynningarstarf

Stöðugt er unnið að því að kynna starfsemi 112 enda er mikilvægt að almenningur geri sér grein fyrir eðli þjónustunnar og kunni að nota hana rétt. Mikill fjöldi gesta kemur ár hvert í Björgunarmiðstöðina Skógarhlíð að kynna sér starfsemi 112. Um er að ræða hópa á ýmsum aldri, allt frá leikskólabörnum til ellilífeyrisþega. Ýmsir faghópar koma reglulega til að kynnast starfseminni. Í tengslum við vígslu Björgunarmiðstöðvarinnar

Í mars var almenningi gefinn kostur á að kynna sér miðstöðina og starfsemi hennar. Þúsund manns þáðu boðið og sýndu gestir starfsemi 112 mikinn áhuga. Af miklum fjölda gesta á síðasta ári er vert að nefna að dómsmálaráðherra heimsótti Björgunarmiðstöðina í janúar og 8. september kom Karl Gústav Svíakonungur í heimsókn ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. Þá heimsótti varainnanríkisráðherra Kína miðstöðina í nóvember.

Sérstakt átak var gert til að kynna þjónustu 112 í barnaverndarmálum. Gefin voru út plaköt sem dreift var víða um land og birtar fréttir og auglýsingar í blöðum. Lögð var áhersla á þennan þátt í samvinnu 112 og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í árlegu eldvarnaátaki í nóvember og desember. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn heimsækja þá nemendur í þriðja bekk allra grunnskóla landsins og kynna meðal annars neyðarnúmerið. Þeir færðu börnunum að þessu sinni rauða blýantsyddara sem eru í laginu eins og hjálmur slökkviliðsmanns með neyðarnúmerinu framan á og greiddi 112 fyrir það.

Þegar 112 hóf rekstur Vaktstöðvar siglinga var hafist handa við að kynna þjónustu hennar fyrir markhópum, meðal annars með birtingu auglýsinga í skipaskrám og á vefnum. Einnig voru framleiddir límmiðar sem fyrirhugað er að dreifa í skip.

Ný heimasíða, www.112.is, var opnuð í maí og er hún mikið notuð. Unnið var að gerð vandaðs bæklings fyrir 112 og kom hann út á íslensku og ensku í janúar 2005. Fyrirtækið hefur ekki áður lagt í framleiðslu á svo vönduðu kynningarefni.

Ennfremur var tekin ákvörðun um að efna til svonefnds 112 dags hér á landi 2005 og hófst undirbúningur að honum í desember 2004. Gert er ráð fyrir að 112 dagurinn verði árlegur viðburður og beri ævinlega upp á 11. febrúar.



 

 

Text Size Controls