Nýtt Tetrakerfi gangsett.
Þjónustusvæði Tetra stækkar
Aðfararnótt 3. maí var nýtt Tetra kerfi tekið í notkun.
Skiptingin tók tæpar 2 klukkustundir þar sem slökkt var á öllum 40 sendum gamla kerfisins og kveikt var á 49 sendum í nýja kerfinu.
Búið er að setja upp töluvert fleiri senda, en þjónustuaðilar eiga enn eftir að setja upp línur á þá staði. Í hverri viku fjölgar uppkomnum sendum og munu koma fréttir um það þegar þjónustusvæðið stækkar.
Þjónustusvæðið er þó búið að stækka töluvert m.v. gamla kerfið og erum við komnir inn með Snæfellsnesið að hluta til, hluta af Austfjörðum ásamt hluta hálendisins og erum að vinna í að fá alla landshluta inn.


