Í næstu viku mun teymi frá Motorola koma til landsins til uppfærslu á nýja Tetra kerfinu. Í þessari uppfærslu verða nokkur atriði leyst og endurbætt fyrir okkur. En á meðan uppfærslunni stendur verður að taka þjónustuna niður í örskamma stund og munu því truflanir verða á meðan þetta stendur yfir.
Við biðjumst velvirðingar á þeim truflunum sem þetta kann að valda, en stefnum á að þetta verði ekki nema örstutt, aðeins nokkrar mínútur.