Fréttir frá Tetra

TetraMastur

Staða Tetra-kerfisins

Uppbyggingu Tetra-kerfisins er að mestu lokið og notendum hefur fjölgað mikið

2.7.2009

Tetra þjónar grunnstoðum samfélagsins

Tetra-kerfið hefur byggst hratt upp á undanförnum árum og lauk uppbyggingu kerfisins í meginatriðum 2008. Notendum hefur fjölgað mjög á síðustu misserum og nú er svo komið að Tetra er orðið ómissandi í fjarskiptum ýmissa aðila sem þjóna grunnstoðum samfélagsins á sviði öryggis, orku, samgangna, heilbrigðis og fjarskipta.

Undirbúningur að uppfærslu og stækkun kerfisins hófst í ársbyrjun 2007 en settir voru upp 40 sendar á árunum 1999-2004. Nýja kerfið er frá Motorola og gefur kost á 200 sendum en stefnt var að uppsetningu 150 senda. Félag í eigu ríkisins og Neyðarlínunnar, Öryggisfjarskipti ehf., á búnaðinn en Neyðarlínunni var falin uppbygging og rekstur kerfisins. Hjá Neyðarlínunni vinna fimm við þetta verkefni og sjá þeir einnig um fjarskiptakerfi Vaktstöðvar siglinga. Í árslok 2008 voru 148 sendar virkir. Eftir það hefur verið unnið að þéttingu með nýjum sendum og endurvörpum. Kerfið frá Motorola nefnist Dimetra og var það uppfært úr 6.0 í 6.1 í maí 2008.

Sannaði gildi sitt í jarðskjálftanum
Notendum hefur fjölgað gríðarlega og voru 4.800 í árslok 2008. Fjöldi notenda var 1.200 í ársbyrjun 2007 og 2.800 í lok sama árs. Í hópi notenda eru fáeinir einstaklingar en aðallega er um að ræða stofnanir, fyrirtæki og félög sem starfa að öryggismálum, samgöngum, orkumálum, fjarskiptum, heilbrigðismálum og fleiri grunnstoðum í samfélaginu.

Notkun Tetra hjá þessum aðilum stuðlar bæði að auknu öryggi og hagkvæmni í rekstri. Sem dæmi um mikilvægi kerfisins fyrir öryggi landsmanna má nefna að þegar jarðskjálftarnir urðu á Suðurlandi í maí 2008 var Tetra-kerfið eitt af fáum samskiptakerfum sem stóðst álagið sem skapaðist. Í aðgerðum vegna skjálftanna nutu kostir Tetra sín einnig mjög vel, meðal annars sá kostur að mjög auðvelt er að tengja saman ólíka notendahópa innan kerfisins. Þess má geta að notendum Tetra fjölgaði verulega eftir að það sannaði getu sína með svo áþreifanlegum hætti.

Stærstu notendahóparnir
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru fjölmennasti notendahópurinn í kerfinu en þess ber að geta að sveitir félagsins um land allt aðstoðuðu við uppbyggingu kerfisins með því að leggja fram tæki og mannskap. Slökkvilið, sjúkraflutningar og lögregla eru mjög virkir hópar í Tetra-kerfinu. Aðrir virkir og fjölmennir hópar notenda eru orkufyrirtækin, fjarskiptafyrirtæki, heilbrigðisstofnanir, álver og fleiri.

Notkun kerfisins hefur aukist jafnt og þétt. Uppköll í kerfinu eru nú að meðaltali um 250 þúsund á mánuði og ganga um 96,5 prósent þeirra tafalaust sem er álitið mjög góður árangur. Eins og gefur að skilja er hins vegar mjög misjafnlega mikil umferð um einstaka senda. Sendarnir í Reykjavík eru mest notaðir; á Hallgrímskirkjuturni, í Skógarhlíð á Bústaðavegi og í Sólheimum. Þegar á heildina er litið er við venjulegar aðstæður aðeins um þriðjungur afkastagetu kerfisins nýttur.

Notendabúnaður í Tetra-kerfinu líkist að mörgu leyti VHF-talstöðvum. Hann er talsvert stærri en til dæmis GSM- tæki, enda er hér um að ræða tæki sem er á margan hátt mun flóknara og fjölhæfara en farsíminn. Tækin eru ýmist handtæki eða gerð fyrir uppsetningu í bíl. Unnt að fá flest þeirra með innbyggðum GPS-móttakara sem bæði gagnast til þess að staðsetja tækið í ferilvöktun, en einnig er hægt að lesa hnit notandans af skjánum. Ferilvöktun er virk á 2.000 tækjum og fara um 7.800.000 ferlivöktunarskeyti um kerfið í hverjum mánuði.

 

 

Text Size Controls