Fréttir frá Tetra

Motorola MTP 850

Tetra World congress 2009

2.7.2009

Tveir starfsmenn tetra, Jón Ágúst og Þröstur fóru á Tetra ráðstefnuna, sem í ár var haldin í Munchen í Þýskalandi, ráðstefnan og sýningin sem henni fylgir, var mjög stór í ár sem ef til vill skýrist af því að byrjað er að reisa mjög stórt Tetrakerfi sem á að þjóna þýsku viðbragðsaðilunum. Vel á annað hundrað sýnendur voru þarna með sína bása, þar sem til sýnis voru alls konar vörur tengdar Tetra staðlinum.

Stóru framleiðendurnir þrír Motorola, Eads og Sepura sýndu allir nýjar handstöðvar og búnað þeim tengdan. Athyglisvert var að sjá að ef eitthvað er hafa stöðvarnar frekar stækkað en minnkað og var sú þróun svipuð hjá flestum frameiðendum. Þessar stöðvar eru í ár allar komnar með aukinn sendistyrk.

Sömu aðilar eru einnig allir komnir með sína útgáfu af „fjarforritun“ fyrir búnað sinn þar sem möguleiki er á að forrita notendabúnað með sjálfvirkum hætti gegn um netið þannig væri t.d. hægt að forrita notendabúnað á Akureyri með sérstökum netþjóni sem tengd væri „server“ sem staðsettur væri í Skógarhlíðinni.

Af hálfu Motorola kom fram að stýrikerfi 6.2 er komið á markaðinn og þar með eiginleiki sem heitir Útkall (Callout) sem er nokkuð sem búið er að bíða lengi eftir og verður virkur þegar við fáum þessa uppfærslu á miðkerfinu.

Þá sýndi Motorola þarna nýtt kerfi sem gerir ferilvöktun innanhúss mögulega og er eitthvað sem gæti gagnast hér t.d. í fangelsum og annars staðar þar sem þörf er á að fylgjast með starfsmönnum, vegna þess hversu störf þeirra eru hættuleg.

Sepura sýndi einnig innanhúss ferilvöktunarkerfi sem byggir á „bluetooth“ tækni og sem virtist virka mjög vel.

Fjölmargar aðrar nýjngar voru í boði og væri hægt að halda endalaust áfram.

 

 

Text Size Controls