Starfmannastefna

Neyðarlínan leitast við að vera einn eftirsóknarverðasti vinnustaður landsins, þar sem fyrsta flokks fagleg þekking og þjónustuvilji fara saman, þar sem starfsfólk nýtur jafnréttis og fær tækifæri til að öðlast faglegan og persónulegan þroska í starfi. Neyðarlínan hefur innleitt sveigjanlegan vinnutíma til að skapa starfsfólki tækifæri til að tryggja jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsmannastefnan snýst um að auka lífsgæði starfsfólks, þjónustu við viðskiptavini og efla traust og trúnað á fyrirtækinu.

Helstu áhersluatriði starfsmannastefnunnar eru:

  • að gera Neyðarlínuna að eftirsóknarverðum vinnustað,
  • að velja starfsfólk af kostgæfni og í samræmi við þarfir þess á hverjum tíma,
  • að auka þekkingu og þjálfun starfsfólks,
  • að halda sjónarmiði jafnréttis í heiðri,
  • að tryggja jafnvægi milli vinnu og einkalífs,
  • að leitast við að ábyrgð og árangur í starfi sé sambærilegur og best er.


Markmið:

Markmið starfsmannastefnunar er að stuðla að því að Neyðarlínan gegni hlutverki sínu, eins og kveðið er á um í lögum um neyðarsímsvörun nr. 25/1995, og uppfylli réttmætar væntingar sem gerðar eru til fyrirtækisins og starfsfólks þess. Til þess að svo megi verða þarf Neyðarlínan að hafa á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki sem nýtir starfskrafta sína í þágu þeirrar þjónustustarfsemi sem þar fer fram og bregst við síbreytilegum þörfum neyðarsveita og almennings.

Starfsmannastefnunni er ætlað að vera til hvatningar og upplýsingar fyrir allt starfsfólk Neyðarlínunnar. Hún lýsir gagnkvæmum vilja til þess að vera góður vinnustaður, þar sem gott starf er unnið af áhugasömu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis. Starfsmannastefnunni er ætlað að tryggja starfsfólki sem best starfsskilyrði og möguleika á að vaxa og dafna í starfi.


Gagnkvæmar væntingar

Neyðarlínan væntir þess að starfsfólk:

  • sýni kostgæfni og þjónustulund í starfi,
  • sýni ábyrgð og sjálfstæði,
  • sýni vilja og hæfni til samstarfs,
  • sýni skilning og frumkvæði,
  • sýni sveigjanleika og aðlögunarhæfni.
  • axli þá ábyrgð sem starfslýsing segir til um
  • taki tillit til samstarfsfólks
  • virði að innan starfstöðvar gildir bann við einelti og kynferðislegri áreitni í orði eða verki
  • leitist við að vera stundvíst, snyrtilegt, vinnusamt og virkt.


Ábyrgð starfólks liggur m.a. í:

  • að hafa vinnuumhverfi snyrtilegt, umgangast tækjabúnað með virðingu og virða reglugerðir um hollustuhætti.
  • að fara eftir gildandi öryggisreglum m.a. um aðgengi að húsnæði, brunamál og slysavarnir á vinnustað.


Starfsfólki er ljóst:

  • að reykingar eru takmarkaðar í Skógarhlíð 14 og ber að fara eftir gildandi reglum um reykingar
  • að störf þess eru þjónustustörf sem byggja á þekkingu og virðingu fyrir viðfangsefnum fyrirtækisins hverju sinni
  • mikilvægi þess að tryggja hag og velferð samstarfsfólks og fyrirtækisins með vönduðum vinnubrögðum, skýrum ábendingum um það sem betur má fara og velvild í öllum samskiptum.



Upplýsingar, boðmiðlun og samskipti:

Allar almennar upplýsingar um stefnu og starfsemi Neyðarlínunnar skulu ávallt vera öllu starfsfólki aðgengilegar og skiljanlegar. Skýrar boðleiðir og óhindrað flæði upplýsinga milli starfsfólks óháð stöðu innan fyrirtæksins styrkir samstöðu, eykur ábyrgð og bætir samskipti. Stjórnendum ber skylda til að upplýsa um málefni sem varða störf annarra innan fyrirtæksins. Neyðarlínan skal stuðla að góðum starfsanda, þar sem ríkir traust, trúnaður og hreinskilni. Starfsfólk skal temja sér kurteisi og háttvísi í framkomu og auðsýna hvert öðru tilhlýðilega virðingu, umburðarlyndi og jákvætt viðmót.



Væntingar starfsfólks til Neyðarlínunnar eru m.a. að:

  • það hafi tækifæri til að axla ábyrgð og taka þátt í mótun stefnu fyrirtæksins og ákvarðanatöku um málefni sem varða störf þeirra sérstaklega,
  • skyldur og ábyrgð stjórnenda sé skýr,
  • starfsöryggi sé tryggt svo sem frekast er unnt,
  • því séu greidd sanngjörn laun fyrir störf sín,
  • því sé sýnt traust, tillitssemi og hreinskilni,
  • unnið sé að góðu samstarfi og vinnuanda,
  • vinnuaðstaða og félagslegt starfsumhverfi sé gott,
  • því sé veitt tækifæri til endurmenntunar og síþjálfunar í starfi.

 

Stjórnun

Neyðarlínunni skal stjórnað í anda þeirra meginstefnu að veita öllu starfsfólki, í samræmi við hæfni þeirra og eðli starfsins, virka innsýn í stjórnun fyrirtækisins og ákvarðanatöku. Stjórnunarhættir skulu vera góðir og nútímalegir, sem m.a. felast í jákvæðu viðhorfi til samstarfsfólks og virku upplýsingastreymi.
 
Stjórnendur skulu jafnan leitast við að hafa samráð við starfsfólk um málefni vinnustaðarins er varðar starfsfólk og beita sér fyrir sem víðtækastri sátt um þau. Ákvörðunarvald og ábyrgð stjórnenda gagnvart starfsfólki skulu vera vel skilgreind og starfsfólki ljós. Stjórnendur eiga að vinna að settum markmiðum og gera starfsfólki kleift að taka framförum, bæði faglega og persónulega.



Ráðning og starfsferill

Neyðarlínan leitast við að ráða hæft, dugandi og heiðarlegt starfsfólk. Stefnt er að því að það þyki eftirsóknarvert að starfa hjá Neyðarlínunni, ekki aðeins vegna þeirra vinnubragða, starfsaðstöðu og starfsanda sem þar er, heldur einnig vegna þeirra launakjara sem þar eru í boði.



Starfsmannaþörf

Allar ákvarðanir um ráðningu starfsfólks skulu vera vel ígrundaðar og rökstuddar í samræmi við áætlanir um starfsmannaþörf. Mikilvægt er að það liggi ljóst fyrir þegar auglýst er hvert sé markmiðið með ráðningunni. Tekið skal tillit til starfsfólks sem fyrir er. Liggja skal fyrir starfslýsing fyrir öll störf sem ráðið er í. Þegar starfsfólk lætur af störfum skal starfið endurskoðað og metið hvort ráða eigi í það að nýju.



Starfsauglýsingar

Neyðarlínan telur mikilvægt að þeirri meginreglu sé fylgt að auglýsa laus störf til umsóknar. Neyðarlínan leggur ennfremur metnað sinn í að standa vel að gerð auglýsinga, svo sem þess að jafnréttissjónarmiðum sé framfylgt.



Ráðningar

Ákvarðanir um ráðningar starfsfólks skulu vera rökstuddar og þeim reglum fylgt sem þar um gilda. Í samvinnu við Háskóla Íslands hafa sérstakar kannanir verið valdar sem lagðar eru fyrir umsækjendur um störf neyðarvarða og eru þær hluti af ráðningarfelinu. Ráðning til reynslu er æskileg, þar sem því verður við komið. Reynslutíminn skal miðast við 6 mánuði. Þessi tími gefur báðum aðilum tækifæri til að meta hvort starfið henti viðkomandi til frambúðar og er lögð áhersla á að reynslutíminn sé vel nýttur til að meta það.



Móttaka og fræðsla fyrir nýtt starfsfólk

Neyðarlínan leggur áherslu á að taka vel á móti nýjum starfsfólki og að því líði vel í starfi frá byrjun. Nýtt starfsfólk skal frætt um almenna starfsemi fyrirtækisins og þann hluta starfseminnar sem lýtur sérstaklega að starfsviði þess og um réttindi þess og skyldur. Næsti yfirmaður er ábyrgur fyrir því að nýju starfsfólki sé veitt slík fræðsla.



Starfsþjálfun, endur- og símenntun

Neyðarlínunni er það kappsmál að veita öllu starfsfólki trausta og góða starfsþjálfun og viðhalda henni og auka hana með endur- og símenntun. Neyðarlínan leggur þá skyldu á allt starfsfólk, að hafa frumkvæði til þess að afla sér þekkingar og gera athugasemdir þegar þörf er á meiri þekkingu.
Starfsfólk skal leitast við að laga sig að síbreytilegum kröfum, sem starfið gerir til þeirra, svo sem vegna faglegrar og tæknilegrar þróunar og vera reiðubúið að þjálfa sig til nýrra og breyttra verkefna. Þjálfun og viðbótarmenntun skulu reiknast starfsfólki til tekna við frammistöðumat.
Að frumkvæði stjórnenda skulu ár hvert, í september, lagðar fram áætlanir um þörf fyrir sí- og endurmenntun fyrir næsta tímabil og árangurinn af þeim áætlunum metinn að hverju tímabili loknu.



Frammistöðumat

Árangur og frammistaða í starfi skal metin reglulega. Í þessu sambandi skal unnið að faglegu, en jafnframt einföldu og skilvirku frammistöðumati, sem byggir m.a. á starfsmannasamtölum. Við frammistöðumat skal sérstaklega horft til gæða þeirra þátta sem til mats koma.



Starfsskilyrði

Neyðarlínan leitast við að tryggja öllu starfsfólki þau skilyrði og þá aðstöðu sem þarf til að rækja starf sitt vel.



Launamál

Neyðarlínan vill búa starfsfólki sínu góð launakjör, starfsskilyrði og starfsaðstöðu svo að fyrirtækið geti ráðið til sín og haldið hæfu starfsfólki í samkeppni við innlendan og erlendan vinnumarkað. Reynt verði að gera launakerfið þannig úr garði að það hvetji starfsfólk m.a. til að taka þátt í þeirri mönnun sem alltaf þarf að vera til staðar á varðstofu. Neyðarlínan vill vinna gegn óhóflegri yfirvinnu með því að hækka grunnlaun starfsfólks. Laun starfsfólks skulu vera í samræmi við hæfni, ábyrgð, frammistöðu og árangur í starfi. Til að tryggja slíkt samræmi skal ávallt liggja fyrir starfslýsing og fara fram starfsmat með reglubundnum hætti.



Vinnutími

Vinnutími er að jafnaði 37,5 stundir á viku fyrir fullt starf. Innan Neyðarlínunnar ákvarðast vinnutími þó einnig af inntaki, tilhögun og kröfum hverrar starfseiningar. Neyðarlínan vill eftir megni taka tillit til óska starfsfólks um vinnutíma og starfshlutfall, til þess hefur verið notað óháð vaktakerfi á varðstofu sem hefur hagsmuni starfsfólks að leiðarljósi.
 
Markmiðið er að starfsfólk geti samrýmt einkalíf og vinnutíma að svo miklu leyti og mögulegt er. Lögð er áhersla á góða ástundum og stundvísi.



Orlof

Við töku orlofs skal starfsfólk taka mið af því að Neyðarlínan er neyðarþjónusta þar sem öll þjónusta verður að vera til staðar með fullri mönnun eftir skilgreindri mannaflaþörf. Starfsfólk skal skipuleggja orlof sitt í samráði við yfirmann og/eða nánasta samstarfsfólk, helst eigi síðar en fyrir lok mars ár hvert.



Starfsaðstaða og starfsumhverfi

Neyðarlínan leitast við að tryggja öllu starfsfólki gott starfsumhverfi sem fullnægir ströngustu kröfum um öryggi, hollustu og vinnuvistfræði.  Vinnuumhverfi skal vera laust við hættuleg efni og aðrar hættur eins og kostur er og í samræmi við lög og reglugerðir um öryggi og aðbúnað á vinnustöðum. Starfsfólk ber sjálft ábyrgð á að fylgja þeim kröfum sem gerðar eru til þess um aðgætni í starfi og leggur þannig fram mikilvægan skerf til aukins starfsöryggis.



Áfengi og vímuefni

Neyðarlínan er áfengis- og vímuefnalaus vinnustaður. Í þessu felst að óheimilt er að neyta áfengis eða vímuefna eða vera undir áhrifum áfengis og vímuefna í starfi. Komi í ljós að starfsfólk eigi við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða ber næsta yfirmanni og/eða samstarfsfólki að leita úrlausna í samráði við framkvæmdastjóra.



Heilsurækt og félagsstarf

Æskilegt er að starfsfólk leggi rækt við eigin heilsu og ástundi heilbrigt líferni. Neyðarlínan tekur þátt í kostnaði starfsfólks vegna aðstöðu til heilsuræktar og stuðlar með því að bættri líðan og heilsu þess. Aðgangur er að líkamsræktaraðstöðu og gufubaði hjá fyrirtækinu. Neyðarlínan vill efla samvinnu og samneyti starfsfólks og stuðla að ýmis konar samtökum þeirra á milli, t.d. með því að leggja því til aðstöðu eftir því sem unnt er.



Framkvæmd og ábyrgð

Yfirstjórn Neyðarlínunnar með öðrum skilgreindum stjórnendum ber að annast framkvæmd starfsmannastefnunnar. Stefnan er gefin út af framkvæmdastjóra sem bera jafnframt ábyrgð á því að henni sé framfylgt.



Gildistími og endurskoðun

Starfsmannastefna Neyðarlínunnar tekur gildi þann 01.01.2004. Stefnan skal endurskoðuð eftir þörfum.



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica