Föstudaginn 9. september opnaði Ásgrímur L. Ásgrímsson yfirmaður Vaktstöðvar siglinga nýja heimasíður fyrir Vaktstöðina vaktstod.is. Við opnunina voru auk Ásgríms yfirmenn þeirra aðila sem koma að rekstri Vaktstöðvarinnar, Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, Þórhallur Ólafsson framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, Baldur Bjartmarsson forstöðumaður rekstrarsviðs Siglingastofnunar, Stefán Eiríksson skrifstofustjóri á dómsmála- og löggæsluskrifstofu dómsmálaráðuneytisins og Sigurður Steinar Ketilsson skipherra á varðskipinu Tý.
Ásgrímur opnar síðuna. Mynd Birkir Agnarsson