Endurnýjun samnings um rekstur Vakstsöðvar siglinga
Frá undirskrift samningsins
S.l. föstudag 8. janúar var undirritaður nýr þjónustusamningur milli Siglingastofnunar Íslands og Neyðarlínunnar um rekstur Vaktstöðvar siglinga en eldri samningur hefur verið í gildi frá árinu 2004. Hlutverk aðila skiptast þannig að Siglingastofnun hefur með höndum fjárhagslegt og faglegt eftirlit með rekstrinum, sinnir samskiptum við stjórnvöld og samstarfi við alþjóðastofnanir um siglingamál.
Neyðarlínan sér um fjármál og rekstur vaktstöðvarinnar og gerir samninga við verktaka þar um. Nýlega var allur fjarskiptabúnaður vaktstöðvarinnar endurnýjaður og óðum er nýtt og betra vöktunarkerfi að leysa hið eldra af hólmi. Með nýjum samningi næst m.a. endurskipulagning og hagkvæmari rekstur á starfsemi og búnaði stöðvarinnar. Þar með er einnig nauðsynlegum niðurskurði á framlögum ríkisins mætt og sparnaðarmarkmiðum náð.


