1. gr.
Frá og með 24. september 2005 til og með 31. mars 2006 eru allar veiðar bannaðar á svæði á Látragrunni, sem markast af línum, sem dregnar eru mill eftirgreindra punkta.
1. 65°03´00 N - 26°42´00 V
2. 65°10´00 N - 26°42´00 V
3. 65°10´00 N - 25°43´00 V
4. 65°03´00 N - 25°50´00 V
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 20. september 2005