Neyðar- og öryggisþjónusta
Vaktstöð siglinga er ætlað að sjá um eftirtalin atriði er varða neyð og öryggi sjófarenda á hafsvæðinu umhverfis Ísland
- Vöktun og stjórnun neyðarfjarskipta skipa, þ.m.t. alþjóðlegar neyðarrásir, innlendar neyðar- og vinnurásir, STK, Inmarsat og Cospas-Sarsat
- Navtex þjónusta (vital, important og routine tilkynningar)
- Beiðni um læknisaðstoð (MEDICO)
- Útsending siglingaaðvarana (bilanir í vitakerfinu, reköld, farartálmar, hafís)
- Vöktun skipa í kerfi tilkynningaskyldu (hand- og sjálfvirkri)
- Tengiliður við erlendar björgunarstöðvar


