Dvöl og ráðgjöf fyrir konur

Kvennaathvarfið er hús þar sem konur og börnin þeirra geta búið í stuttan tíma ef þær geta ekki búið heima hjá sér út af ofbeldi. Ef þú hefur orðið fyrir ofbeldi getur þú talað við ráðgjafa í Kvennaathvarfinu. Þú þarft ekki að dvelja í húsinu. Það skiptir ekki máli þótt hafi átt sér stað fyrir löngu síðan. Það kostar ekkert að tala við ráðgjafa eða dvelja í húsinu.

Þú getur fengið táknmálstúlkun og tungumálatúlkun ef þú þarft. Það er ekki aðgengi fyrir hjólastól í athvarfinu. Þá geturðu farið í viðtal hjá ráðgjafa í Bjarmahlíð og ef þér vantar húsnæði geturðu fengið að gista á hóteli.

Þú getur hringt allan sólarhringinn í Kvennaathvarfið í síma 561 1205 til að fá stuðning. Þú getur líka sent þeim tölvupóst á kvennaathvarf@kvennaathvarf.is. Allar konur eru velkomnar: íslenskar, erlendar, fatlaðar, hinsegin, trans, á hvaða aldri sem er eldri en 18 ára.

Kvennaathvarfið á Akureyri hjálpar öllum konum sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi, bæði með húsaskjól og ráðgjöf.

Aðstoð í boði

Sjá alla aðstoð
Hús Aflins á Akureyri

Aflið á Akureyri

Aflið hjálpar fólki sem hefur orðið fyrir hvers konar ofbeldi.

Kvennaathvarfið

Kvennaathvarfið býður upp á ráðgjöf og húsnæði fyrir allar konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi

1717

1717 er hjálparsími og netspjall Rauða Krossins ef þú vilt tala við einhvern. Það er opið allan sólarhringinn. Ekkert vandamál er of lítið eða of stórt.

Andlegt ofbeldi

Andlegt ofbeldi er þegar einhver hótar þér, gerir lítið úr þér eða lætur þér líða illa. Það getur verið bæði með orðum og hegðun.

Manneskja situr í hjólastól. Hún snýr frá okkur og horfir upp í vindinn. Mikið og liðað hár sveiflast í vindinum.

Öryggisáætlun

Að útbúa öryggisáætlun er leið til að vernda öryggi þitt og barnanna þinna, hvort sem það er innan sambandsins eða ef þú ákveður að fara.