Neyðarstig - eldgos hafið á Reykjanesi

Einelti

Vanda Sig er í baráttuliðinu gegn einelti. Krakkar í því liði berjast gegn einelti, eru góðir við aðra og passa að enginn sé útundan. Til að vera með þarf bara að ákveða í hjartanu að vera góð manneskja og taka ekki þátt í einelti.

Einkastaðir

Öll eigum við einkastaði sem enginn annar má snerta. Það sem nærbuxur og sundföt hylja (kynfæri og rass) eru einkastaðir. Það má segja nei ef einhver reynir að brjóta regluna um einkastaðina. Ef einhver brýtur regluna um einkastaðina á barnið að segja einhverjum fullorðnum sem það treystir frá því eða hringja í 112.

Það er aldrei barni að kenna ef einhver brýtur regluna um einkastaðina.

Líkami minn tilheyrir mér

Leyndarmálið

Sumum leyndarmálum á maður að segja frá, eins og bestu vinirnir Álfur og Embla læra í þessari mynd.

Börn

Hér geta börn lesið um ofbeldi og hvaða hjálp er í boði.