Neyðarstig - eldgos hafið á Reykjanesi

Hvað er nauðungarhjónaband?

Nauðungarhjónaband er þegar manneskja er neydd í hjónaband sem hún vill ekki ganga í. Það gæti verið til að fá réttindi eða til að hinn aðilinn hagnist á því, til dæmis til að fá dvalarleyfi eða ríkisborgararétt.

Þú gætir verið í nauðgunarhjónabandi ef:

  • Þér er hótað, eða þrýst á þig með ofbeldi eða annars konar þvingunum til að giftast einhverjum sem þú vilt ekki giftast.
  • Þú neyðist til að giftast einhverjum sem hagnast á því með því að fá dvalarleyfi eða ríkisborgararétt.
  • Þú vissir ekki að þú værir að fara að gifta þig.
  • Þú mátt ekki tala um hjónabandið þitt við aðra.
  • Þér er lofað dvalarleyfi, ríkisborgararéttur eða peningar í staðinn fyrir að ganga í hjónaband.
  • Einhver annar hagnast á því að þú gangir í hjónaband gegn vilja þínum.

Ert þú í nauðungarhjónabandi? Hafðu samband við 112 og fáðu hjálp.

Einkenni mansals

Aðferðir þeirra sem stunda mansal eru þekktar. Ef þú þekkir einkenni og aðferðir við mansal, þá eykur þú líkurnar á að uppræta það.

Aðstoð í boði

Sjá alla aðstoð

Kvennaathvarfið

Kvennaathvarfið býður upp á ráðgjöf og húsnæði fyrir allar konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi

Kvennaathvarfið á Akureyri

Kvennaathvarfið býður upp á ráðgjöf og húsnæði fyrir allar konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi.

Kynlífsmansal

Kynlífsmansal er þegar einhver hagnast á að selja aðgang að líkama annarrar manneskju.