Um Vaktstöðina

Um Vaktstöðina

Siglingastofnun Íslands var með lögum frá 2003 falið að fara með yfirstjórnmála er varða Vaktstöð siglinga. Sérstakur þjónustusamningur var gerður við þrjá aðila um rekstur vaktstöðvarinnar, Landhelgisgæslu Íslands sem fer með faglega stjórn vaktstöðvarinnar, Neyðarlínuna hf. sem fer með fjármál vaktstöðvarinnar, húsnæðismál og annan rekstur og Slysavarnafélagið Landsbjörg sem rekur björgunarbáta víða um land, auk yfirstjórnar björgunarsveita.

Tilkynningaskyldan og fjarskiptastöð skipa í Gufunesi, Reykjavík radíó, fluttu í húsnæði Neyðarlínunnar í Skógarhlíð  14. ágúst 2004, en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar 13. maí 2005.  Þar með sameinuðust lykilaðilar vegna leitar og björgunar á hafsvæðinu umhverfis ísland undir heitinu Vaktstöð siglinga.


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica