Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við 112, smelltu þá á netspjall eða hringdu í 599-0112. Aðrar leiðir til að ná sambandi

Korda

Sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar

Maður að vinnu í fjarskiptamastri. Ljósmyndari stendur í mastrinu fyrir ofan hann og lítur niður. Þeir eru báðir mjög hátt uppi í mastrinu.

Sameinað félag Farice ehf., Öryggisfjarskipta ehf. og tæknihluta Neyðarlínunnar ohf. tók formlega til starfa 1. september undir nafninu Korda. Ákvörðun um sameiningu félaganna var kynnt í desember 2025. Farice og tæknihluti Neyðarlínunnar renna saman í móðurfélagið Korda ehf. og verður Öryggisfjarskipti ehf. rekið sem dótturfélag Korda. Korda verður í fullri eigu ríkisins.

Korda rekur fjarskiptakerfi sem eru undirstaða stafræns samfélags og mikilvægrar verðmætasköpunar á Íslandi ásamt því að vera tæknilegur bakhjarl Neyðarlínunnar. Korda er því líflína fjarskipta Íslands.

Korda mun annast rekstur fjarskiptasæstrengja sem tengja Ísland við umheiminn, Tetra-öryggisfjarskiptakerfisins auk tæknilegra kerfa sem styðja við neyðarþjónustu, almannavarnir, sjófarendur, viðbragðsaðila, fjarskiptafyrirtæki, opinbera aðila og aðra mikilvæga starfsemi. Einnig rekur Korda varaleið fjarskipta við umheiminn um gervihnattakerfi.

Korda tekur því líka við hlutverki Vakstöðvar Siglinga.

Nánari upplýsingar á vef Korda.