Vinnsla persónuupplýsinga á 112.is

Allar upplýsingar sem koma hér fram eiga við um vefinn www.112.is og allar undirsíður á þeim vef.

Hér er að finna upplýsingar um:

  • Neyðarlínuna, sem ber ábyrgð á vefnum www.112.is.
  • Vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram á vefnum www.112.is, hvernig og af hverju sú vinnsla fer fram og með hvaða heimild.
  • Hvers konar persónuupplýsingar er unnið með og hverjir fá þær upplýsingar.
  • Hversu lengi upplýsingarnar verða geymdar.
  • Hver eru réttindi þeirra sem upplýsingarnar eru um.
  • Hvaðan upplýsingarnar eru fengnar.
  • Hvaða kröfur eru gerðar til þeirra sem vinna með persónuupplýsingarnar.

Þessari upplýsingasíðu er ætlað að uppfylla fræðsluskyldu sem er einkum fjallað um í 17. grein laga númer 90/2018.

Um okkur

Við erum Neyðarlínan ohf., kt. 511095-2559, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík. Við erum ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga á vefnum www.112.is.

Hvernig fer vinnslan fram?

Þegar notandi skoðar síður á vefnum 112.is eru skráðar neðangreindar persónuupplýsingar um hann og þann búnað sem hann er að nota. Unnið er með þær í þeim tilgangi og með þeim hætti sem lýst er hér að neðan.

Í hvaða tilgangi er unnið með persónuupplýsingar?

Í stuttu máli er unnið með persónuupplýsingar í tengslum við vefinn í þeim tilgangi að:

  • Bregðast við óskum notenda um þjónustu okkar.
  • Uppfæra vefinn.
  • Bregðast við tæknilegum vandamálum í rekstri vefsins.

Nánar verður farið yfir hvaða upplýsingar er unnið með hér að neðan.

Hvaða persónuupplýsingar er unnið með og í hvaða tilgangi?

  • Tengiliðaupplýsingar (nafn og símanúmer): Ef notandi ætlar að taka þátt í netspjalli við neyðarvörð þá þarf hann áður að gefa upp bæði nafn sitt og símanúmer. Hann þarf einnig að gefa upp staðsetningu sína, annað hvort með því að velja hana á landakorti eða með því að veita aðgang að sjálfvirkri skráningu staðsetningar í búnaði sínum.

    Upplýsingarnar eru notaðar til að geta rakið hvar sá sem leitar aðstoðar er staddur og til að hægt sé að vera í sambandi við hann.
  • Upplýsingar í netspjalli um atvik máls: Áður en notandi tekur þátt í netspjalli getur hann slegið inn upplýsingar í opna textasvæðið „Lýstu atvikum nánar“ og, þegar komið er inn í netspjallið, í reitinn „Sláðu inn skilaboð“. Þar getur hann einnig hlaðið upp skrám með því að smella á hnappinn „Hlaða upp“.

    Upplýsingarnar eru notaðar til að hægt verði að veita þá aðstoð sem þörf er á.
  • Netauðkenni (veffang / IP tölur): Þegar notandi vafrar um vefinn eru skráðar upplýsingar um veffang hans.
    Upplýsingarnar eru notaðar til að geta rakið hvaðan neyðarboð koma en einnig til að geta rakið hvernig vefurinn er notaður, hvaða leið notendur fara um hann og á hvað þeir smella (notkunarupplýsingar), til þess að við getum tekið upplýstar ákvarðanir um að breyta notendaviðmóti og eiginleikum vefsins, greint og brugðist við tæknilegum vandamálum á vefnum, uppfært hann og bætt virkni hans.
  • Upplýsingar um þann búnað sem notandi notar til að vafra um vefinn, þ.e. tegund vafra, stýrikerfis og búnaðar (greiningarupplýsingar, á ensku, „user agent string“):
    Upplýsingarnar eru notaðar til að greina og bregðast við tæknilegum vandamálum á vefnum, uppfæra hann og bæta virkni hans.
  • Ábendingar til siðanefndar: Notandi getur skrifað þær upplýsingar sem hann kýs í opna textasvæðið á eyðublaði fyrir ábendingar til siðanefndar Neyðarlínunnar, þar á meðal persónuupplýsingar. Að auki er hægt að fylla í reitina „Nafn“, „Símanúmer“, „Efni“ og „Netfang“. Með því að smella á „Senda“ á eyðublaðinu eru skilaboðin flutt til vinnsluaðila okkar sem sendir þau í tölvupósti til siðanefndar.
    Upplýsingarnar eru notaðar til að auðvelda nefndinni að svara þeim sem kom ábendingunni á framfæri, kjósi hann það.

Hvaða heimild er til að vinna með persónuupplýsingar?

Öll framangreind vinnsla persónuupplýsinga er okkur nauðsynleg til að Neyðarlínan geti veitt viðeigandi þjónustu, sem er verk sem unnið er í þágu almannahagsmuna. Í þeim tilvikum sem leitað er til okkar af eða vegna fólks sem statt er í brýnni neyð þá er framangreind vinnsla persónuupplýsinga nauðsynleg til að vernda brýna hagsmuni notenda eða annarra einstaklinga.

Hvert er persónuupplýsingum miðlað?

Persónuupplýsingum frá notendum vefsins er miðlað til vinnsluaðila okkar sem annast hluta af umræddri vinnslu. Við höfum gert vinnslusamninga við þá í samræmi við persónuverndarlög. Við gerum þær kröfur til þeirra að unnið sé með persónuupplýsingar á að minnsta kosti jafn öruggan hátt eða öruggari en lýst er í þessum skilmálum og er krafist í persónuverndarlögum. Við munum skipta um vinnsluaðila eftir þörfum, að uppfylltum ákvæðum laganna. Við afhendum ekki þær persónuupplýsingar sem hér er fjallað um í öðrum tilvikum nema á grundvelli fyrirmæla í settum réttarreglum, í niðurstöðum dómstóla eða í niðurstöðum stjórnvalda.

Hversu lengi verða persónuupplýsingar geymdar?

Við erum „afhendingarskyldur aðili“ samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn (lög nr. 77/2014). Okkur er því óheimilt að eyða þeim gögnum sem við vinnum með, þar á meðal þeim sem innihalda persónuupplýsingar, nema með heimild Þjóðskjalasafns Íslands.

Hver eru réttindi þeirra sem upplýsingarnar eru um?

Sá sem upplýsingarnar eru um á rétt á að óska eftir aðgangi að og afriti af persónuupplýsingum sínum hjá okkur, láta leiðrétta þær ef þær eru rangar eða villandi eða láta eyða þeim ef við höfum ekki lengur heimild til að vinna með þær.

Þessum réttindum er nánar lýst í lögum um persónuvernd (17. og 20. greinum laga nr. 90/2018). Sá sem upplýsingarnar eru um getur samkvæmt síðarnefndu lagagreininni einnig átt rétt á að flytja eigin gögn eða að við takmörkum vinnslu persónuupplýsinga um hann, að uppfylltum nánar tilteknum skilyrðum. Hann á einnig rétt á að andmæla vinnslunni (21. grein laganna) og rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna vinnslunnar. Skrifstofa hennar er að Laugavegi 166, 105 Reykjavík og netfang hennar er postur@personuvernd.is.

Hvaðan eru persónuupplýsingarnar fengnar?

Eingöngu er unnið með þær persónuupplýsingar sem fengnar eru frá notanda vefsins sjálfum eða úr þeim búnaði sem hann notar til að vafra um vefinn.

Hvernig er hægt að láta stöðva vinnsluna og fá upplýsingum um sig eytt?

Þeim sem upplýsingarnar eru um er ekki skylt að afhenda okkur neinar upplýsingar. Afleiðingar þess að hann afhendir ekki persónuupplýsingar eru að það gæti reynst erfitt eða jafnvel ómögulegt að veita þá þjónustu sem leitað er eftir á vefnum.

Hafðu samband

Ávallt er hægt að hafa samband við okkur á netfanginu personuvernd@112.is um hvaðeina sem tengist vinnslu persónuupplýsinga á vefnum.

Útgáfa upplýsingasíðunnar

Þetta er útgáfa 1.1 af þessari upplýsingasíðu en hún var birt 29. janúar 2026. Henni kann að verða breytt án fyrirvara en nýjustu útgáfu hennar er ávallt finna hér á vefnum.