Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við 112, smelltu þá á netspjall eða hringdu í 599-0112. Aðrar leiðir til að ná sambandi

Aðstoð í boði - Einblöðungur

Stofnanir og samtök sem þú getur leitað til þegar þú þarft aðstoð.

Aðstoð í Boði einblöðungurinn tekur fyrir helstu úrræði vegna ofbeldis sem einstaklingar geta leitað til, flokkuð eftir tegund ofbeldis. Auðvelt er að haka við þau úrræði sem henta hverjum og einum.

Einblöðungurinn er hugsaður fyrir alla sem eiga í samskiptum við hugsanlega þolendur, aðstandendur eða gerendur til að auðvelda upplýsingagjöf um úrræði.

Mælt er með að einblöðungurinn sé prentaður á 115 gramma ljósritunarpappír.

Hægt er kaupa þá þykkt meðal annars hjá Rekstrarvörum.