Ofbeldishringurinn
- Spenna safnast upp.
- Á einhverjum tímapunkti losnar um spennuna og gerandi beitir ofbeldi. Það getur til dæmis verið andlegt, líkamlegt eða kynferðis ofbeldi.
- Eftir ofbeldið koma „Hveitibrauðsdagar.“
Hveitibrauðsdagarnir einkennast af:
- Gerandi sér eftir öllu.
- Gerandi lofar að allt verði betra núna sem vekur von hjá þolanda.
- Kærleikskaffæring (enska: love bombing) fylgir oft þessu tímabili.
- Allt er rólegt og fullkomið og því engin ástæða fyrir þolanda að yfirgefa sambandið.
Spenna byrjar samt að safnast upp aftur og ofbeldishringurinn heldur áfram.
