Öruggir skemmtistaðir
Kalla til lögreglu ef upp kemst um ofbeldisbrot, kynferðisbrot og vörslu eða neyslu ólöglegra fíkniefna.
Sýna núll þol gagnvart ofbeldi og öllum mögulegum birtingamyndum þess, þ.m.t. kynferðisbrot, kynbundið og kynferðislegt áreiti sem og annað áreiti og ofbeldi sem byggist t.d. á fordómum eða hatri, svo sem í garð innflytjenda eða hinsegin fólks.
Eru með markvisst, skipulagt og tímasett eftirlit með salernum m.a. til þess sporna við ofbeldisbrotum, kynferðisbrotum og vörslu eða neyslu ólöglegra fíkniefna.
Tryggja að dyr og læsingar að salernum séu með þeim hætti að dyraverðir og/eða starfsfólk geti opnað hurðir utan frá svo sporna megi við ofbeldis- og kynferðisbrotum.
Útbúa salerni þannig að ekki sé hægt að komast yfir eða undir skilrúm þeirra en að auðvelt sé að sjá hvort og hversu margir eru þar svo sporna megi við ofbeldis- og kynferðisbrotum.
Allt starfsfólk skemmtistaða á rétt á því að
- Starfa án þess að verða fyrir ofbeldi eða hótunum
- Starfa án þess að verða fyrir kynbundinni eða kynferðislegri áreitni
- Finna til öryggis í starfi