Ef þú átt í erfiðleikum með að ná sambandi í síma 112 þá geturðu notað netspjall og símanúmerið 599-0112. Aðrar leiðir til að ná sambandi

Ofbeldismóttaka barna á Landspítala

Heilbrigðisþjónusta, áfallahjálp, stuðningur og fræðsla fyrir börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og aðstandendur þeirra.

Ofbeldis- og áfallateymi barna er þverfaglegt teymi innan Kvenna- og barnaþjónustu Landspítala.

Teymið veitir börnum sem hafa orðið fyrir hvers kyns ofbeldi sérhæfða áfallahjálp og styður aðstandendur þeirra með ráðgjöf og fræðslu.

Í teyminu starfa sálfræðingar, félagsráðgjafar og fjölskyldufræðingur, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í barnalækningum.

Teymið sinnir meðal annars börnum sem hafa orðið fyrir líkamlegu eða andlegu ofbeldi, ofbeldi frá jafnöldrum, einelti, stafrænu ofbeldi, hótunum eða áreiti, og börnum sem hafa orðið vitni að ofbeldi.

Hvernig er vísað til teymisins?
Heilbrigðisstarfsfólk vísar málum í gegnum Heilsugátt (spjallrás: Ofbeldismóttaka barna – ERINDI)

Allir geta haft samband í síma eða tölvupósti og fengið ráðgjöf. Tilvísunarform er einnig aðgengilegt á vefnum.