Samfélagssjóður Neyðarlínunnar

Neyðarlínan veitir styrki til samfélagsmála ár hvert. Stefna sjóðsins er að styðja verkefni sem hafa möguleika á að hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag.

Tjaldstæði á fallegu íslensku sumarkvöldi. Fjöll í baksýn. Fólk er að koma sér fyrir í tjöldum meðan aðrir eru að elda eða borða sitjandi á teppi. Búið er að kveikja upp varðeld og þar situr gítarleikari og syngur. Myndin er í lit nema einn aðili sem liggur í hengirúmi með öðrum hálf falinn. Er allt í góðu hjá þeim?

Tekið er á móti umsóknum allt árið en úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári. Umsóknarfrestur er til 31. mars og 30. nóvember ár hvert.

Öllum um­sókn­um verður svarað þegar tek­in hef­ur verið afstaða til þeirra. Fyrirspurnir berist á styrkir (hjá) 112.is

Styrkir

Styrkumsóknir skulu berast í gegnum meðfylgjandi form, með nafni og netfangi tengiliðar. Í lýsingu skuli verkefninu lýst, markmið og tímaáætlun.

Neyðarlínan vinnur samkvæmt stefnu um samfélagslega ábyrgð en leiðarstefið er að fyrirtækið leggi sitt af mörkum til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Eitt af þeim skrefum er að styrkja margvísleg verkefni sem eru jákvæð fyrir samfélagið í heild.

Hægt er að lesa stefnu Neyðarlínunnar um samfélagslega ábyrgð í heild sinni hér