Heimilisofbeldisteymi

Á öllum heilbrigðisstofnunum á Íslandi er hægt að fá þjónustu Heimilisofbeldisteymis.

Tvær manneskju í blómakrónu. Önnur er leið. Hin er ánægð. Þær teygja sig í áttina að hvor annarri. Á myndinni lítur út eins og þær muni haldast í hendur mjög fljótlega.

Heimilisofbeldisteymi

Þú getur fengið aðstoð vegna heimilisofbeldis á bráðamóttökum, sjúkrahúsum og á heilsugæslum um land allt, hvort sem brotið er nýafstaðið eða einhver tími er liðinn. Hjúkrunarfræðingar geta aðstoðað þig allan sólarhringinn í síma 1700.

Í teyminu eru sálfræðingar og félagsráðgjafar sem hafa sérþekkingu á ofbeldi í nánum samböndum. Þau bjóða upp á fræðslu og ráðgjöf.

  • Starfsfólk teymisins ræðir við þig í einrúmi og metur með þér hvaða þjónustu þú þarft og vilt.
  • Allur stuðningur er veittur á staðnum eða á fjarfundi eða í síma. Þú getur fengið túlk ef þú þarft.
  • Þjónustan er veitt á heilbrigðisstofnunum á öllu landinu, er ókeypis og opin fyrir alla þolendur, óháð búsetu, efnahag eða kyni.
  • Þú átt alltaf rétt á stuðningi, óháð aðstæðum – sama hvort þú hyggst kæra eða ekki, ert í neyslu eða ert að glíma við heimilisleysi.

Teymið

Félagsráðgjafi

Getur aðstoðað þig við praktísk málefni eins og fjárhagsaðstoð og húsnæði, hvar sem þú býrð á landinu. Félagsráðgjafinn verður málastjóri þinn í ferlinu.

Áfallateymi

Býður upp á aðstoð, fræðslu og ráðgjöf við úrvinnslu áfallsins.

Réttargæslumaður

Lögmaður sem hefur það hlutverk að gæta hagsmuna þinna og veita þér aðstoð í málinu gegnum réttarkerfið. Þú þarft ekki að borga fyrir þjónustuna heldur greiðir ríkið kostnaðinn.

Lögregla

Þú getur fengið að tala við lögreglu hvort sem þú ert að hugsa um að kæra eða ekki. Það getur verið gott að fá upplýsingar um ferlið, rétt þinn og jafnvel tilkynna brotið þótt það sé ekki kært.

Eftirfylgni

Málastjórinn þinn styður þig í gegnum allt ferlið og inn í önnur úrræði.

Teymið getur líka aðstoð við að komast í Kvennaathvarf ef þig vantar öruggt skjól.

Læknisskoðun

Læknir og hjúkrunarfræðingur skoða þig saman og meta þörf fyrir ljósmyndir af áverkum og mögulegum rannsóknum. Ef málið fer áfram í réttarkerfinu getur það styrkt málið að hafa áverkavottorð.

Hjúkrunarfræðingur:

  • Veitir þér stuðning og útskýrir hvernig skoðun fer fram.
  • Framkvæmir rannsóknir og veitir meðferð eftir þörfum.

Læknir:

  • Spyr þig um áverka- og heilsufarsögu.
  • Framkvæmir skoðun á líkamlegum áverkum.
  • Pantar viðeigandi rannsóknir. Læknir sem er ábyrgur fyrir rannsóknum fylgir eftir niðurstöðum og upplýsir þig þegar við á.

Hverjir sjá að ég hef farið?

Allt starfsfólk heilbrigðisstofnana er bundið þagnarskyldu, þannig að heimsókn þín og meðferð eru trúnaðarmál.

  • Ef líf þitt eða barns er talið vera í hættu, til dæmis ef um hálstak er að ræða eða þú ert barnshafandi, er starfsfólki skylt að tilkynna það til lögreglu.
  • Upplýsingar eru skráðar í sjúkraskrána þína og enginn utan heilbrigðisstofnana fær aðgang að þeim nema með þínu leyfi. Þú getur alltaf fengið yfirlit yfir hverjir hafa skoðað sjúkraskrána þína.