Þessi síða er hluti af Leiðarvísi um réttarvörslukerfið fyrir þolendur kynferðisbrota sem eru 14 ára og yngri .

Hjá héraðssaksóknara

  1. Ef lögreglan sendir málið áfram til héraðssaksóknara er það skoðað aftur vel þar.
  2. Svo er ákveðið hvort einstaklingurinn sem braut á þér verði ákærður af héraðssaksóknara eða ekki.
  3. Ef hann er ákærður þarf hann að mæta fyrir dóminn og segja hvort hann sé sekur eða saklaus. Þetta er kallað fyrirtaka í héraðsdómi.
  4. Ef viðkomandi segist vera sekur, viðurkennir að hafa brotið á þér, kveður dómarinn upp hvaða refsingu viðkomandi á að fá.
  5. Ef einstaklingurinn sem braut á þér neitar því að hafa gert það, þá þarf að rétta í málinu.
  6. Þá fer fram aðalmeðferð í dómsal, sem er það sama og við köllum stundum réttarhöld. Þegar aðalmeðferð er lokið þá kveður dómari upp dóm og segir þá hvort það sé búið að sanna að viðkomandi sé sekur eða ekki. Ef það hefur ekki tekist að sanna það nógu vel er hann saklaus.

Um héraðssaksóknara og héraðsdóm

Réttarkerfinu er skipt í nokkur dómstig. Héraðssaksóknari er eitt dómstig, önnur eru til dæmis Hæstiréttur og Landsréttur.

Héraðssaksóknari er bara einn fyrir allt landið. Aðalmeðferð getur þó verið hvar á landinu sem er. Héraðsdómar eru á átta mismunandi svæðum. Yfirleitt er málið tekið fyrir þar sem gerandinn á heima.

Staðreynd: Það eru mestar líkur á að einstaklingur sem brýtur á þér sé einhver sem þú þekkir.

Af hverju eru mál felld niður?

Ef það hefur ekki náðst að safna nægum gögnum um málið þitt ákveður héraðssaksóknari að gefa ekki út ákæru. Þá er málið fellt niður.

Ef málið þitt nær ekki lengra í kerfinu þýðir það alls ekki að ofbeldið hafi ekki átt sér stað. Helsta hlutverk réttarvörslukerfisins, lögreglu og dómstóla, er að horfa blákalt á gögn í sakamálum. Þessar stofnanir mega einfaldlega ekki túlka atvik í málinu út frá neinu öðru.

Ef málið þitt er fellt niður er farið yfir ástæðurnar þar að baki með foreldrum þínum eða forsjáraðilum og réttargæslumanninum.

Niðurfelling kærð til ríkissaksóknara

Það er hægt að kæra það að málið hafi verið fellt niður. Þá ræða foreldrar þínir eða forsjáraðilar við réttargæslumanninn þinn um það.

Upplýsingagjöf

Héraðssaksóknari hefur aðeins samband við réttargæslumanninn sem kemur upplýsingunum um málið áfram til foreldra þinna eða forsjáraðila.

Tímalengd

  • Meðferð málsins hjá lögreglu tekur venjulega um 1 ár.
  • Meðferð málsins hjá héraðssaksóknara tekur yfirleitt um hálft ár í viðbót.

Þess vegna líður oft um eitt og hálft ár síðan brotið var framið og þangað til það kemur í ljós hvort gerandinn verði ákærður eða ekki.