Segðu frá

Talaðu um það sem gerðist við einhvern sem þér finnst gott að tala við og þú treystir, til dæmis einhvern í fjölskyldunni.

Þú getur líka talað við:

  • Skólahjúkrunarfræðinginn
  • Kennarann þinn
  • Þjálfarann þinn
  • Starfsfólkið í félagsmiðstöðinni þinni

Svo er fullt af fólki sem þekkir þig ekki en vill hjálpa þér:

  • Sjúkt spjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni (yngri en 20 ára) til að ræða áhyggjur af samböndum, samskiptum eða ofbeldi.
  • Hjálparsími og netspjall 1717 er opið allan sólarhringinn. Þar er hægt að tala í trúnaði um hvað sem er.
  • Sími og netspjall 112. Þá er fenginn ráðgjafi frá barnavernd eða félagsþjónustu sem veitir þér og fjölskyldunni þinni stuðning. Það þarf að gefa upp nafn en þú getur beðið um að enginn annar fái að vita það.
  • Bergið headspace er ókeypis stuðnings- og ráðgjafasetur sem aðstoðar ungt fólk. Þar geturðu bókað tíma hjá ráðgjafa sem fer yfir vandann, veitir stuðning og ráðgjöf.
  • Hinsegin félagsmiðstöð er fyrir öll ungmenni á aldrinum 13-17 ára sem vilja spjalla í félagsmiðstöð þar sem öll eru velkomin.
  • Heilsugæslustöðvar eru flestar með sérstaka móttöku fyrir ungt fólk á aldrinum 13-20 ára til að ræða um heilsu og líðan.

Ef brotið er kært, hvað gerist þá ?

Leiðarvísirinn hér fyrir neðan útskýrir ferlið sem þú ferð í gegnum ef brotið gegn þér er kært.

Sjá leiðarvísi fyrir 15-17 ára

Þegar þú hefur sagt frá

Þá tekur alls konar fólk við málinu sem passar upp á að þér líði vel. Til dæmis barnavernd.

Munur á þér og þeim sem eru eldri

Manneskjan á myndinni er leið. Hún er ljóshærð og klædd í bláan stuttermabol. Hún er með lokuð augun og lítur niður til hægri.

Þú þarft til dæmis ekki að mæta á lögreglustöð eða dómsal.

Viðtal í Barnahúsi

Manneskja stendur að baki annarri manneskju og heldur utan um hana. Hún brosir en manneskjan sem hún heldur utan um er leið á svip. Þær eru báðar með lokuð augun.

Barnahús er venjulegt hús og ekkert eins og lögreglustöð. Þú hittir sérfræðing sem talar við þig um það sem gerðist.

Lögreglan rannsakar

Hendur halda á tveimur stórum pússluspilum og eru að setja þau saman.

Lögreglan vill komast að því sem gerðist.

Fer málið fyrir dóm?

Manneskja með áhyggjusvip horfir út í buskann. Tvö stór spurningamerki svífa í kringum hana.

Nú kemur í ljós hvort það verði ákært í málinu eða hvort það verði fellt niður.

Málinu lokið

Viltu fræðast meira um ofbeldi?