Hvað geta foreldrar gert?
Stafrænir miðlar eru orðnir fastapunktur í tilveru barna og unglinga í dag. Þetta opnar fyrir heilan heim af möguleikum og samböndum sem er spennandi að vera partur af. Því miður vitum við að sum börn upplifa óþægilega hluti á netinu og við vitum líka að það er oft ekki talað nóg um þetta heima við.
Við getum haft jákvæð áhrif á upplifun barna og unglinga á netinu með því að vera góð fyrirmynd. Einnig er hægt að skoða jákvæðar hliðar netsins, eins og að lesa, skapa myndefni, tónlist og sögur. Þannig hvetjum við börn og unglinga til að vera gagnrýnin á efnið sem þau skoða. Góð regla er að koma fram við aðra á sama hátt og maður gerir í eigin persónu.
Það besta sem þú getur gert til að vernda barnið þitt frá stafrænu ofbeldi, neteinelti og óviðeigandi netsamskiptum er að tala opinskátt við þau um þessi mál.
Dæmi um hluti sem eru ekki í lagi
- Að stríða eða leggja einhvern í einelti á netinu af því að hann sé öðruvísi.
- Að skrifa særandi athugasemdir um útlit annarra.
- Að deila eða hóta að deila nektarmyndum af öðrum án leyfis.
- Fá sendar óumbeðnar kynferðislegar myndir eða skilaboð.
Margar ástæður geta verið fyrir því að börnum finnist óþægilegt að tala um þessi mál. Þau gætu skammast sín fyrir hvað gerðist, hrædd við að lenda í vandræðum, óttast afleiðingar eins og hefnd eða jafnvel ekki fundist neitt að óviðeigandi hegðun. Þótt það geti verið erfitt að tala um þessi mál vilja börn að það sé hægt að tala um þetta og fá stuðning frá fullorðnum.
Opnaðu fyrir samræðuna
- Kenndu barninu að nota netið og samfélagsmiðla á öruggan hátt. Til dæmis að deila ekki persónulegum upplýsingum.
- Sýndu áhuga á því sem barnið er að gera á netinu í sínu daglegu lífi. Spurðu hvað það er að gera með vinum sínum, alveg eins og þú myndir spyrja út í skólann eða frístundir.
- Taktu eftir því hvenær barnið hefur tíma og áhuga á að tala við þig. Sýndu að þú ert til í að ræða málin.
- Láttu barnið þitt reglulega vita að það geti alltaf komið til þín og þú munir alltaf vera til staðar fyrir það.
- Hvettu barnið þitt til að segja fullorðnum frá óþægilegum samskiptum svo það geti fengið hjálp til að leysa vandamálið á góðan máta.
Spurningar til að byrja samræðuna
- Hversu margir af vinum þínum þora að vera þeir sjálfir á netinu?
- Hvað myndir þú gera ef einhver færi að stríða þér á netinu?
- Ef þú myndir gera YouTube-rás, um hvað myndi hún vera?
- Hvort myndir þú heldur vilja vera í fríi í 1 viku með símann þinn eða í 2 vikur án síma?
- Þú ert í bæ í útlöndum þar sem þú skilur ekki tungumálið. Hvaða þrjú öpp myndirðu fyrst nota?