Netöryggi barna

Handhægar upplýsingar fyrir foreldra barna varðandi netöryggi.

Rannsóknir á netnotkun og netupplifun ungmenna á Íslandi í dag benda til þess að þau upplifi ýmislegt í hinum stafræna heimi sem er þeim ekki boðlegt. Stórt hlutfall barna hefur verið beðið um nektarmynd en slíkt er ólöglegt samkvæmt íslenskum lögum. Það er áhyggjuefni hve mörg þeirra verða við beiðninni og senda af sér mynd sem síðan er auðvelt að deila áfram.

Hér má finna erindi þar sem ýmsir sérfræðingar fara yfir ráðleggingar til foreldra um stöðuna og hvernig þau geta brugðist við til að auka netöryggi barna sinna.

Verkfærakista foreldra

Í Verkfærakistu foreldra hjá Netvís finnur þú samantekt á fræðsluefni um vinsæla samfélagsmiðla, fjölskyldustillingar, tilkynningaleiðir og öryggisstillingar.

Talaðu við börn um örugg netsamskipti

Kenndu börnum leiðir til að koma í veg fyrir stafræn brot og leiðir til að takast á við það ef það gerist.

Það sem börnin okkar sjá á netinu

Fjölmiðlanefnd fékk Menntavísindastofnun Háskóla Íslands til að framkvæma víðtæka spurningakönnun meðal grunn- og framhaldsskólanema á aldrinum 9-18 ára um allt land á vormánuðum árið 2021.

Snapchat

Snapchat er vinsæll samskiptamiðill þar sem hægt er að senda efni sem hverfur eftir að það hefur verið skoðað. Yfir 80% af ungmennum á aldrinum 14-16 ára á Íslandi nota Snapchat.

Upplýsingar um Snapchat

Snapchat leiðbeiningar

Hvað er stafrænt ofbeldi?

Stafrænt ofbeldi, eða netofbeldi, er tiltölulega nýtt hugtak í umræðunni. Með því er átt við það þegar einhver notar tæki eða tækni til að fylgjast með, ógna, áreita eða niðurlægja aðra manneskju. Stafrænt kynferðisofbeldi snýr svo að því þegar tæknin er notuð til að tæla, áreita kynferðislega eða lokka aðra til að senda af sér kynferðislega mynd sem er svo send áfram.

Manneskja horfir á símann sinn sem sýnir ólæsileg skilaboð. Hún snýr baki í okkur svo við sjáum á símann í höndunum á henni. Mikið liðað hár sveiflast í vindinum.

Stafrænt ofbeldi

Stafrænt ofbeldi, eða netofbeldi, er það þegar einhver notar tæki eða tækni til að fylgjast með þér, ógna þér, áreita þig eða niðurlægja þig.

Nektarmyndir, myndbönd og stafrænt kynferðisofbeldi

Það er stafrænt kynferðisofbeldi þegar einhver tekur eða deilir kynferðislegri efni af þér án leyfis. Það er líka ólöglegt að hóta að deila kynferðislegu efni eða senda það án samþykkis móttakanda.

Manneskja situr flötum beinum á gólfinu með annan fótinn krossaðan yfir. Hún er leið á svip og með lokuð augun. Hún er með dökkt sítt hár, er í blárri peysu, dökkum buxum og brúnum skóm. Hún heldur hægri hendinni upp að eyranu en heldur farsímannum upp fyrir framan sig í vinstri hendinni.

Nektarmyndir, myndbönd og stafrænt kynferðisofbeldi gegn börnum

Að taka eða senda kynferðislega mynd eða myndband af börnum er ólöglegt.

Manneskja situr fyrir framan fartölvu og er með hendur fyrir andliti. Bakvið hana er þrumuský.

Nektarmyndir, myndbönd og stafrænt kynferðisofbeldi gegn unglingum

Það er ekkert að því að taka og senda kynferðislega mynd eða myndband af sér eða öðrum ef allir aðilar eru til í það. En þegar það er gert með þrýstingi eða án leyfis er það ólöglegt.

Hvernig á að tilkynna efni á samfélagsmiðlum?

Tölvuleikir

Það er mikilvægt fyrir foreldra að vita hvaða leiki börnin þeirra spila. Margir leikir eru einungis á snjallsímum eða spjaldtölvum svo það er auðvelt að taka ekki eftir hvað verið er að spila. Leikir í dag eru oft jafn mikið samfélagsmiðlar og tölvuleikir svo það þarf líka að fylgjast með við hverja börnin eru að tala í tölvuleikjunum.

Upplýsingar um vinsæla leiki:

Gervigreind

Gervigreindarforrit eru orðin mjög vinsæl hjá fullorðnum og börnum. Mikilvægt er að muna að forritin hafa ekki raunverulega greind. Þau eru mállíkön sem framleiða upplýsingar út frá tengingu orða. Hjá krökkum eru vinsælustu „AI“ forritin Character.ai og MY AI.

10 heilræði um gervigreind

Netvís er með lista yfir 10 góð heilræði sem allir ættu að lesa.

Stafrænt uppeldi

Mikilvægt er að aðstoða börn þegar kemur að því að fóta sig á netinu. Börn eiga sömu réttindi á neti og annars staðar, rétt til verndar, þjónustu og þátttöku. Góð samskipti og hlustun er grundvöllur þess að börn treysti og segi frá ef þau verða fyrir ofbeldi eða óþægindum á neti.

Klám og sexting

Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu og kennari við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnisstjóri Jafnréttisskóla Reykjavíkur.

Svar við nektarmynd