Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við 112, smelltu þá á netspjall eða hringdu í 599-0112. Aðrar leiðir til að ná sambandi

Haturstjáning

Haturstjáning er þegar einhver hræðir, hæðist að, rógber, smánar eða ógnar einstaklingi eða hópi vegna fordóma eða haturs sem gerandi hefur í garð hópsins.

Kona heldur fyrir andlitið á meðan að stór hendi bendir á hana.

Haturstjáning er flókið og erfitt málefni sem er áskorun fyrir nútímasamfélag.

Á Íslandi er tjáningarfrelsi en Stjórnarskrá Íslands gefur leyfi til að afmarka tjáningarfrelsi með lögum ef talin er þörf til að vernda borgara. Haturstjáningu er refsiverð samkvæmt íslenskum lögum.

Hverjir verða fyrir haturstjáningu?

Hver sem er getur orðið fyrir haturstjáningu en þolendur eru í flestum tilvikum hinsegin fólk, innflytjendur og aðrir jaðarsettir hópar.

Haturstjáning beinist gegn:

  • Uppruna
  • Litarhætti
  • Kynþætti
  • Trúarbragði
  • Fötlun
  • Kyneinkennum
  • Kynhneigð
  • Kynvitund
  • Öðrum svipuðum þáttum

Hverjir beita haturstjáningu?

Haturstjáning er ekki einangrað vandamál sem hægt er að setja á einn tiltekinn hóp. Allir geta tjáð hatur og fordóma í garð hópa, jafnvel þó að gerandinn sé sjálfur meðlimur í hópnum. Hópar sem verða fyrir haturstjáningu geta líka beitt haturstjáningu gegn öðrum jaðarhópum.

Hvar viðgengst haturstjáningu ?

Haturstjáning getur viðgengst alls staðar þar sem fólk er en er algengari á sumum stöðum en öðrum, svo sem:

  • Á samfélagsmiðlum og þá oft í hópum þar sem orðræðan er réttlætt sem málfrelsi eða grín.
  • Í athugasemdakerfum fréttamiðla.
  • Hvar sem fólk getur tjáð sig undir nafnleynd og án ábyrgðar.
  • Þar sem annað ofbeldi viðgengst almennt.
  • Í ofbeldisfullum samböndum, þá sérstaklega þegar þolandinn er af erlendum uppruna.

Hvað get ég gert ef ég verð fyrir haturstjáningu?

Skráðu atvikið

  • Skrifaðu niður nöfn (bæði geranda og vitna), tíma, staðsetningu og hvað var sagt/gert.
  • Ef hún var myndræn (sem dæmi ef hakakross er málaður á vegg), taktu þá myndir.
  • Ef hún var á internetinu (eins og athugasemd eða skilaboð), taktu þá skjáskot.

Fáðu stuðning

  • Talaðu við einhvern sem þú treystir um hvað gerðist. Það er engin skömm að því að vera þolandi haturstjáningu og það þarf að taka á málinu.

Hvert skal leita

  • Ef hún átti sér stað á netinu, taktu þá skjáskot eða skjáupptöku.
  • Ef hún átti sér stað innan skóla og þú ert nemandi, talaðu þá við námsráðgjafa, kennara eða annan starfsmann sem þú treystir (námsráðgjafi getur alltaf vísað málinu í réttan farveg).
  • Ef hún átti sér stað innan vinnustaðar, talaðu þá við yfirmann eða mannauðsstjóra (á mörgum vinnustöðum eru verkferlar fyrir svona atvik).
  • Ef hún var mjög alvarleg, talaðu þá strax við lögregluna.

Sía eftir flokkum

Stofnanir sem þolendur haturstjáningu geta leitað til

Lögreglan

Lögreglan hjálpar fólki sem verður fyrir ofbeldi. Ofbeldi í nánum samböndum er litið mjög alvarlegum augum hjá lögreglunni.

Viðtalsherbergi í Bjarkarhlíð.

Bjarkarhlíð

Bjarkarhlíð í Reykjavík veitir fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi stuðning og ráðgjöf í hlýlegu umhverfi. Þar geturðu fengið alla aðstoð á einum stað, eins og frá lögreglu, lögfræðingi og öðrum hjálparsamtökum.

Regnbogafáni.

Samtökin '78

Samtökin 78 bjóða upp á ráðgjöf fyrir hinsegin fólk og ungmenni, meðal annars það sem hefur orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi.

Kærunefnd jafnréttismála

Á Íslandi eru lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem banna alla mismunun byggða á kyni. Hægt er að senda kæru á vef Kærunefndar jafnréttismála.

Tjáningarfrelsi og haturstjáning

Það er erfitt að ræða um haturstjáningu nema ræða einnig um tjáningarfrelsi. Samkvæmt 73. grein stjórnarskrár Íslands þá eru lög gegn haturstjáningu fullkomlega réttmæt þar sem einstaklingar þurfa að geta ábyrgst tjáningu sína fyrir dómi.

Lesa meira um tjáningarfrelsi og íslensk lög.

Er haturstjáning stórt vandamál á Íslandi?

Haturstjáning er vaxandi vandamál á Íslandi, þó að fæst brot séu kærð. Haturstjáning verður algengari yfir tímabil þar sem að athygli er á jaðarsettum hópi eða á einstaklingi úr jaðarsettum hópi.

Það er mikilvægt að muna að þeir sem beita haturstjáningu er lítill hópur sem virðist oft stærri því meðlimir hans eru háværir og eyða miklum tíma í að skrifa athugasemdir.

Umræða um vandamál er nauðsynleg til að leysa vandamálið. Umræðan ein og sér er ekki hluti af vandamálinu.

Hverjar eru afleiðingar haturstjáningu?

Haturstjáning er ofbeldi sem getur haft miklar afleiðingar.

  • Fólk sem verður fyrir haturstjáningu er jaðarsett nú þegar og því viðkvæmara fyrir árásum en aðrir. Þolendum getur fundist þau ekki örugg í samfélaginu sem veldur einangrun, öryggisleysi, ótta, kvíða og þunglyndi.
  • Jaðarhópar sem telja sig ekki örugga í samfélaginu einangra sig frá því sem er missir fyrir þjóðfélagið í heild.
  • Eftir því sem haturstjáning er algengari, því „eðlilegri“ verður hún í augum fólks sem fer kannski að trúa því sem er sagt eða fer að beita orðræðunni einnig. Haturstjáning veldur því frekari fordómum og jaðarsetningu.
  • Óttinn við að verða fyrir haturstjáningu getur haft sömu áhrif og haturstjáningin sjálf. Það er því mikilvægt að allir taki þátt í að berjast gegn haturstjáningu og láti vita að hún fái ekki að viðgangast hér á landi.

Það er margt hægt að gera ef þú verður vitni að haturstjáningu eða vilt berjast gegn henni.

  • Taktu afstöðu gegn haturstjáningu og fordómafullu tali opinberlega.
  • Láttu vita að þú sért ósammála þeim sem eru að dreifa fordómum, til dæmis í athugasemdakerfum.
  • Vertu til staðar fyrir þolendur.
  • Athugaðu hvort þinn vinnustaður hafi skýra verkferla ef haturstjáning eða fordómar koma upp.

Lesa meira um leiðir til að takast á við haturstjáningu og fordóma.