Sexan 2025 - Vinningshafar

Njarðvíkurskóli er sigurvegari Sexunnar 2025!

Nú eru úrslit Sexunnar 2025 orðin ljós en það var Njarðvíkurskóli sem vann með stuttmyndinni Áhrif eineltis. Í öðru sæti var Hólabrekkuskóli með stuttmyndina Slagsmál en þriðja sæti hlaut Rimaskóli fyrir stuttmyndina Stafræn sár.

Hvatningarverðlaun Sexunnar eru einnig veitt fyrir eftirtektarverða tækninotkun, efnistök eða aðferðir. Í ár hlaut Hrafnagilsskóli Hvatningarverðlaun Sexunnar fyrir að tefla fram leikurum af erlendum uppruna í burðarhlutverk og sýna á skýran hátt hvernig ungmenni geta leitað aðstoðar í tilfellum stafræns ofbeldis.

Sexan er jafningjafræðsluverkefni sem ætlað er að fræða ungt fólk um birtingarmyndir stafræns ofbeldis. Viðfangsefni stuttmyndanna er tæling, nektarmynd, samþykki eða slagsmál ungmenna.

Hér fyrir neðan má sjá verðlaunamyndir Sexunnar 2025.

1.sæti Sexan 2025 - Áhrif eineltis / Njarðvikurskóli

Forsíðumynd Njarðvíkurskóli Sexan 2025

2.sæti Sexan 2025 - Slagsmál / Hólabrekkuskóli

Forsíða_Hólabrekkuskóli_Sexan2025

3.sæti Sexan 2025 - Stafræn sár / Rimaskóli

Forsíða_Rimaskóli_Sexan2025

Hvatningarverðlauna Sexunnar 2025 / Hrafnagilsskóli

Forsíða_Hrafnagilsskóli_sexan

Sjáðu myndirnar sem sigruðu Sexuna 2023 og 2024

Samstarfsaðilar Sexunnar

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs