
Taktu skrefið
Taktu skrefið er hópur sálfræðinga sem aðstoðar fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi.

Fáðu hjálp og komdu í veg fyrir kynferðisbrot
Ef þú heldur að það sé mögulegt að þú hafir beitt einhvern kynferðislegu ofbeldi eða þú eða aðrir hafa áhyggjur af kynferðislegri hegðun þinni, á netinu eða gagnvart öðru fólki, þá geturðu fengið hjálp.
Taktu skrefið er hópur sálfræðinga með sérþekkingu á þessu sviði. Þar geta börn, ungmenni og fullorðnir fengið aðstoð.
Þjónustan er ekki gjaldfrjáls en flest stéttarfélög niðurgreiða þó sálfræðiþjónustu. Einnig er hægt að athuga með styrk hjá félagsþjónustu eða þjónustumiðstöðvum hjá því sveitarfélagi sem þú átt lögheimili í.
Taktu skrefið og fáðu hjálp.
Heimilisfang
MisjafntTölvupóstur
Vefsíða
Tungumál
Íslenska, English