Mikilvægt að vita
Kynfæri
- Kynfæri eru líkamshlutar sem eru á miðjum líkamanum og tengjast kynlífi og að eignast börn.
- Maður þarf ekki að skammast sín fyrr kynfæri.
- Við viljum samt ekki sýna hverjum sem er kynfærin okkar.
- Kynfæri eru einkamál.
Kynferðislegt efni
- Þegar við tölum um kynferðislegt efni þá getur það verið myndefni (myndir og myndbönd), texti eða hljóð.
- Það getur verið nektarmyndir sem sýna kynfæri, myndbönd sem sýna eitthvað kynferðislegt eða kynferðislegur texti eða hljóð.
Mundu:
- Það má ekki taka kynferðislegt efni af börnum sem eru yngri en 15 ára.
- Það má ekki senda neinum yngri en 15 ára myndefni af kynfærum.
- Það má aldrei senda myndefni af kynfærum nema einhverjum sem hefur samþykkt að fá efnið. Líka þótt þeir séu fullorðnir.
- Fullorðnir mega ekki senda börnum textaskilaboð, myndir eða myndbönd sem eru kynferðisleg.
- Það má ekki deila kynferðislegu efni af öðrum eða hóta að gera það.
Þetta er allt kynferðisofbeldi og er bannað og ólöglegt og á ekki að gerast.













