Hvert get ég farið til að fá hjálp?
Heilsugæslur hafa þagnarskyldu og tala ekki við neinn um þig nema þú samþykkir það.
Ef þú ert á skólaaldri
Ef þú ert á skólaaldri og telur eða veist að þú ert þolandi limlestingar þá geturðu leitað til fullorðinnar manneskju sem þú getur treyst eins og:
- Traustum kennara
- Námsráðgjafa
- Skólahjúkrunarfræðing
- Skólasálfræðing
- Heimilislækni
- Hjúkrunarfræðing á heilsugæslunni
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður hafa fengið þjálfun varðandi þetta og geta hjálpað þér.
- Þú getur farið í heilsugæslu og beðið um að fá að tala við hjúkrunarfræðing.
- Ef þér finnst óþægilegt að fara þá geturðu hringt í heilsugæslu og beðið um að fá símtal frá hjúkrunarfræðing.
Þú þarft ekki að fara til þinnar heilsugæslu eða tala við þinn heimilislækni.
Ef þú telur að vinkona sé þolandi limlestingar
Ef þú sérð eitthvað sem lætur þig halda að vinkona eða bekkjarsystir hafi orðið fyrir limlestingu þá er mjög mikilvægt að þú farir ekki að tala um það við jafnaldra þína. Það getur orðið til þess að stelpan verði fyrir stríðni eða öðru. Þú átt frekar að tala við fullorðinn einstakling sem þú treystir, eins og foreldra þína.
Ef þú ert fullorðin
Ef þú ert þolandi limlestingar á kynfærum þá geturðu leitað til heilsugæslunnar.
- Heilsugæslan getur vísað þér til sérfræðinga sem geta reynt að minnka skaðann.
- Þau geta líka hjálpað þér að fá sálfræðihjálp ef þörf er á.
- Mikilvægt er að láta ljósmóður vita ef þú ert ólétt og í mæðraskoðun.